Kæru íbúar
Á skrifstofu Flóahrepps berast reglulega fyrirspurnir um laust húsnæði til kaups eða leigu í sveitarfélaginu. Okkur langar að hvetja ykkur til að láta skrifstofu Flóahrepps vita ef þið vitið um laust húsnæði í einkaeigu til leigu sem hægt er að miðla til áhugasamra leigjenda. Hægt er að senda upplýsingar á floahreppur@floahreppur.is eða hringja í síma 480-4370.
Nýlega gerðu ríki og sveitarfélög rammasamning um húsnæðisáætlun Íslands 2023-2032. Markmið samningsins er að auka framboð nýrra íbúða til að mæta fyrirsjáanlegri íbúðaþörf ólíkra hópa samfélagsins til skemmri og lengri tíma og stuðla að auknum stöðugleika og jafnvægi á húnæðismarkaði á næstu árum. Sveitarfélög á Íslandi eru hvött til að auka lóðaframboð og útvega byggingarhæfar lóðir, enda er áætluð þörf fyrir uppbyggingu um 35.000 íbúðir á næstu 10 árum til að mæta fólksfjölgun á Íslandi. Við það bætist svo óuppfyllt íbúðaþörf upp á um 4500 íbúðir á landsvísu.
Með kveðju, sveitarstjóri