• 480 4370
  • floahreppur@floahreppur.is
logo-vefurlogo-stickylogo-vefurlogo-vefur
  • STJÓRNSÝSLA OG SKÓLAR
    • Aðalskipulag Flóahrepps 2016-2028
    • Gjaldskrár
    • Skólar
    • Stofnanir
    • Eyðublöð – samþykktir – reglur
    • Skipulagsmál
    • Fundargerðir
  • ÞJÓNUSTA
    • Stefna Flóarhepps – flettibókin
    • Flóaljós
    • Gagnleg símanúmer
    • Vatnsveita
    • Félagsheimili
    • Hundafangari
    • Sorpflokkun – spurt og svarað
  • FERÐAÞJÓNUSTA
    • Áhugaverðir staðir
    • Gistimöguleikar
    • Afþreying, veitingar og verslun
    • Kort af Flóahreppi
    • Menningarferð um Flóahrepp
    • Bæklingur – The animation of Flóahreppur
  • MANNLÍF OG MENNING
    • Atvinnulíf
    • Félagasamtök
    • Áveitan
    • Viðburðir
    • Fjör í Flóa 2019
    • Tónahátíð félagsheimilanna 2018
  • FERÐAÞJÓNUSTA
    • Áhugaverðir staðir
    • Gistimöguleikar
    • Afþreying, veitingar og verslun
    • Kort af Flóahreppi
    • Menningarferð um Flóahrepp
    • Bæklingur – The animation of Flóahreppur
  • MANNLÍF OG MENNING
    • Atvinnulíf
    • Félagasamtök
    • Áveitan
    • Viðburðir
    • Fjör í Flóa 2019
    • Tónahátíð félagsheimilanna 2018
  • Heim
  • Auglýsingar og tilkynningar
  • Fimmtudaginn 28. apríl klukkan 13:00 verður ráðstefnan „Við erum öll almannavarnir“ haldin á Hilton Reykjavík Nordica.

Fimmtudaginn 28. apríl klukkan 13:00 verður ráðstefnan „Við erum öll almannavarnir“ haldin á Hilton Reykjavík Nordica.

28. apríl 2022
Flokkar
  • Auglýsingar og tilkynningar
Stikkorð

Á ráðstefnunni, sem verður streymt hér og á facebooksíðu Almannavarna verður fjallað um almannavarnamál á Íslandi frá ýmsum hliðum. Jón Gunnarsson, dómsmálaráðherra opnar ráðstefnuna en á eftir honum kemur Víðir Reynisson, sviðsstjóri Almannavarna og segir frá áherslum Almannavarna á næstu árum.  Næst þar á eftir verður „3 dagar“ verkefni Rauða krossins kynnt, en þar er gert ráð fyrir að hvert og eitt heimili þarf að geta verið sjálfu sér nægt í 3 daga ef hamfarir og neyðarástand dynur yfir.

Á ráðstefnunni verður einnig talað um áhættustjórnun og gagnsemi áhættustjórnunar og fer bæjarstjóri Reykjanesbæjar yfir hvernig er að stýra bæjarfélagi í almannavarnarástandi. Einnig ætlar íbúi og foreldri í Grindavík að gefa ráðstefnugestum innsýn í hvernig fjölskyldulífið var þegar jarðskjálftar gerðu íbúum lífið leitt og þegar eldgos birtist í bakgarðinum.   

Fyrir nokkrum vikum opnuðu Almannavarnir vefgátt þar sem sveitafélögum í landinu er einfölduð sú vinna að greina og leysa þær krísur sem upp koma á hverju svæði fyrir sig. Þar er einnig að finna leiðbeiningar til að einfalda og hjálpa til við að greina og draga fram þá vá og/eða verkefni sem upp geta komið. Þetta verkefni verður kynnt á morgun.  Í lokin verður farið yfir hver tilgangurinn með þessu öllu er og hví þetta skiptir okkur öll máli.  Hvert og eitt getum við eitthvað, en saman getum við allt.

Það er enn hægt að skrá sig á ráðstefnuna en eins og áður segir verður henni einnig streymt.  Meira um ráðstefnuna.  

Deila
Skrifstofa Flóahrepps er opin frá kl. 09:00 - 16:00 mánudaga - fimmtudaga og 09:00 - 13:00 á föstudögum.
Síminn 480 4370 er opinn frá kl. 09:00 - 13:00 alla virka daga.

    Nafn (nauðsynlegt)

    Netfang (nauðsynlegt)

    Efni

    Skilaboð