Þema ráðstefnunnar er atvinnulífið, nýsköpun og menntun á Suðurlandi þar sem fyrirlesarar koma úr röðum atvinnurekanda, Samtökum atvinnulífsins, Rannís, FSu og Háskólafélags Suðurlands. Eftir erindin verður vinnustofa þar sem þátttakendur taka virkan þátt í að móta framtíð sunnlensks atvinnulífs.
Áhugasöm fyrirtæki, félög og stofnanir geta kynnt starfsemi sína í kynningarbásum yfir daginn. Nánari upplýsingar gefur Ólafur Rafnar Ólafsson, atvinnu- og viðburðafulltrúi, olafur.rafnar@arborg.is
Í lok dags verður öllum ráðstefnugestum boðið í móttöku í Landsbankahúsið, „Bankinn Vinnustofa“.
Atvinnulífið á Suðurlandi er öflugt og fjölbreytt. Mætum nýjum tækifærum af krafti og eflum í sameiningu samstöðu atvinnulífsins á Suðurlandi.
Við vekjum athygli á að hámark þátttakenda verður 200 manns.
Þátttökukostnaður er: 10.000 kr. pr. einstakling.
Hér að neðan er dagskrá dagsins: