Haldinn verður íbúafundur í félagsheimilinu Árnesi þriðjudaginn 8.mars kl 20.00 á vegum Skeiða- og Gnúpverjahrepps.
Á fundinum mun Landsvirkjun kynna starfsemi sína á Þjórsársvæði og áform um Hvammsvirkjun. Á fundinum verða fulltrúar frá Landsvirkjun og sveitarfélaginu Skeiða- og Gnúpverjahrepp. Fundarstjóri verður Sigurður Loftsson.
Íbúar og aðrir hagsmunaaðilar geta sent inn spurningar varðandi virkjunina, framkvæmd hennar og annað sem brennur á fólki, inn á netfangið skrifstofa@skeidgnup.is fyrir miðvikudaginn 2.mars.