Í nótt mun ganga yfir landið djúp lægð og henni fylgir mjög slæmt veður, með mikilli úrkomu og vindstyrk.
Skrifstofa Flóahrepps verður því lokuð a.m.k. til klukkan 12.00 mánudaginn 7. febrúar 2022.
Foreldrar barna í grunn og leikskóla eru beðnir um að fylgjast með tilkynningum frá skólastjórnendum.
Snjómokstur mun ekki hefjast fyrr en veðrið gengur niður.
Mikil áhersla er lögð á að umferð sé algerlega í lágmarki því það flýtir fyrir því að leiðir opnist.
Verum varkár, tökum tillit til aðstæðna svo ekki þurfi að kalla út aðstoð.
Almannavarnir og björgunarsveitir verða að sjálfsögðu á vaktinni, en mikið hefur mætt á björgunaraðilum undanfarna daga .
Sveitarstjóri Flóahrepps