Skólasetning Flóaskóla fer fram 23. ágúst 2021.
Nemendur mæta sem hér segir:
Kl. 9:00 – Nemendur í 2. – 6. bekk
Skólasetning – ávarp skólastjóra (utandyra ef veður leyfir)
Nemendur fylgja umsjónarkennurum í heimastofu þar sem farið verður yfir stundaskrá og
skipulag skólastarfsins. Í framhaldi af því verður námskynning þar sem kynnt verða markmið
og viðfangsefni skólaársins.
Vegna samkomutakmarkana óskum við eftir að aðeins annað foreldri/forráðamaður fylgi hverju barni.
Forráðamenn eru vinsamlega beðnir um að bera grímu innan skólans.
Kl. 10:30 – Nemendur í 7. – 10. bekk

Nemendur í 1. bekk mæta í viðtal ásamt forráðamönnum hjá umsjónarkennara, Hafdísi Gígju
Björnsdóttur. Nánari upplýsingar um tímasetningar sendir umsjónarkennari.
Skólahald hefst þriðjudaginn 24. ágúst samkvæmt stundaskrá og á það einnig við um skólaakstur.
Skipulag skólaaksturs verður birt á heimasíðu skólans.
Skólastjórnendur.