• 480 4370
  • floahreppur@floahreppur.is
logo-vefurlogo-stickylogo-vefurlogo-vefur
  • STJÓRNSÝSLA OG SKÓLAR
    • Aðalskipulag Flóahrepps 2016-2028
    • Gjaldskrár
    • Skólar
    • Stofnanir
    • Eyðublöð – samþykktir – reglur
    • Skipulagsmál
    • Fundargerðir
  • ÞJÓNUSTA
    • Stefna Flóarhepps – flettibókin
    • Flóaljós
    • Gagnleg símanúmer
    • Vatnsveita
    • Félagsheimili
    • Hundafangari
    • Sorpflokkun – spurt og svarað
  • FERÐAÞJÓNUSTA
    • Áhugaverðir staðir
    • Gistimöguleikar
    • Afþreying, veitingar og verslun
    • Kort af Flóahreppi
    • Menningarferð um Flóahrepp
    • Bæklingur – The animation of Flóahreppur
  • MANNLÍF OG MENNING
    • Atvinnulíf
    • Félagasamtök
    • Áveitan
    • Viðburðir
    • Fjör í Flóa 2019
    • Tónahátíð félagsheimilanna 2018
  • FERÐAÞJÓNUSTA
    • Áhugaverðir staðir
    • Gistimöguleikar
    • Afþreying, veitingar og verslun
    • Kort af Flóahreppi
    • Menningarferð um Flóahrepp
    • Bæklingur – The animation of Flóahreppur
  • MANNLÍF OG MENNING
    • Atvinnulíf
    • Félagasamtök
    • Áveitan
    • Viðburðir
    • Fjör í Flóa 2019
    • Tónahátíð félagsheimilanna 2018
  • Heim
  • Auglýsingar og tilkynningar
  • Hætta á gróðureldum – óvissustig almannavarna

Hætta á gróðureldum – óvissustig almannavarna

6. maí 2021
Flokkar
  • Auglýsingar og tilkynningar
Stikkorð

Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjóra og slökkviliðsstjóra á Vesturlandi, Höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Suðurlandi hafa ákveðið að lýsa yfir óvissustigi almannavarna vegna hættu á gróðureldum.

Svæðið sem um er að ræða nær frá Eyjafjöllum að sunnanverðu Snæfellsnesi. Þessi ákvörðun er byggð á því að lítið hefur rignt þessu svæði undanfarið og veðurspá næstu daga sýnir heldur ekki neina úrkomu af ráði.

Óvissustig almannavarna þýðir að aukið eftirlit er haft með atburðarás sem á síðari stigum gæti leitt til þess að heilsu og öryggi fólks, umhverfis eða byggðar verði ógnað. Að lýsa yfir óvissustigi er hluti af verkferlum í skipulagi almannavarna til að tryggja formleg samskipti og upplýsingagjöf á milli viðbragðsaðila og almennings.

Almenningur er hvattur til að sýna aðgát með opin eld á þessum svæðum og öðrum þar sem gróður er þurr. Það þarf ekki mikinn neista til þess að af verði stórt bál.

Ef fólk verður vart við gróðurelda á strax að hringja í 112.

Á heimasíðu almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra er hægt að nálgast upplýsingar um ýmsar varnir til að draga úr hættu af gróðureldum,  einnig á grodureldar.is/. Sjá meðferð eld á grónu svæði

á Suðurlandi nær óvissustigið yfir svæðið frá Eyjafjöllum og vestur að mörkum umdæmisins. Ástandið er heldur alvarlegra í Árnessýslu en á öðrum stöðum en full ástæða til að fara varlega. Samkvæmt veðurspá er engin úrkoma á næstunni og útlit fyrir svipað veðurfar næstu 7 til 10 dagana.

Deila
Skrifstofa Flóahrepps er opin frá kl. 09:00 - 16:00 mánudaga - fimmtudaga og 09:00 - 13:00 á föstudögum.
Síminn 480 4370 er opinn frá kl. 09:00 - 13:00 alla virka daga.

    Nafn (nauðsynlegt)

    Netfang (nauðsynlegt)

    Efni

    Skilaboð