Kæru sveitungar, líkt og undanfarin ár verða umhverfisverðlaun Flóahrepps veitt á 17.júní hátíð sveitarfélagsins og er því óskað eftir tilnefningum frá íbúum.
Við val á aðilum varðandi umhverfisverðlaun er hægt að hafa margt til hliðsjónar, má þar m.a. nefna þetta:
Fyrirtæki og stofnanir:
Húsakosti vel við haldið.
Aðkeyrsla og aðkoma í góðu lagi.
Girðingar snyrtilegar og vel við haldið.
Frumkvæði í upplýsinga- og fræðslumálum varðandi umhverfismál.
Einstaklingar og eða félagasamtök:
Hafa skarað fram úr í umhverfismálum og sýnt það í verki.
Frumkvæði í upplýsinga- og fræðslumálum varðandi umhverfismál.
Frumkvæði í skógrækt, trjárækt eða uppgræðsluverkefnum.
Hafa sinnt hreinsunarverkefnum eða hvatt til átaka til að fegra umhverfið.
Heimili:
Húsakosti vel við haldið.
Þurrt og hreint umhverfis húsakost.
Heimreiðum og aðkeyrslu vel við haldið, holulausir og hreinir kantar.
Girðingar snyrtilegar og vel við haldið.
Vélar og áhöld á ákveðnum stað, upp raðað á snyrtilegan hátt.
Vel hirtur heimagarður, skjólbelti eða skógarreitir.
Almenn snyrtimennska og alúð sýnileg við að fegra umhverfið.
Tilnefningar skulu sendar á netfangið floahreppur@floahreppur.is fyrir 1.júní og í framhaldi af því má búast við aðilum frá Atvinnu- og umhverfisnefnd í skoðunarferðum við fyrirtæki og bæi á tímabilinu 1.-7.júní.