Upphafsáætlun fasteignagjalda er lokið hjá Flóahreppi og hafa álagningaseðlar verið sendir rafrænt á island.is
Álagning fasteignagjalda 2021
Upphafsálagningu fasteignagjalda er lokið hjá Flóahreppi og hafa álagningarseðlar verið sendir rafrænt á island.is
Öll gjöld vegna sorphirðu, vatnssgjald og lóðaleiga, hafa sömu gjalddaga og fasteignaskatturinn og er innheimtu þeirra hagað á sama hátt.
Greiðslur sem eru 20.000 kr eða lægri eru með einn gjalddaga, 1. mars. Greiðslur sem eru 20.001 kr til 60.000 kr greiðast á þremur gjalddögum; 1. mars, 1. maí og 1. júlí. Greiðslur 60.001 kr. og hærri greiðast á níu gjalddögum; 1. mars, 1. apríl, 1. maí,
Eindagi er 30 dögum eftir gjalddaga.
Álagningaseðlar verða ekki prentaðir út heldur sendir rafrænt á island.is.
Innheimtuseðlar verða sendir til allra fyrirtæka og en ekki annarra nema sérstaklega sé óskað eftir því.
Allar nánari upplýsingar um álagningareglur, álagningarhlutföll og gjaldskrár Flóahrepps má finna inni á heimasíðu sveitarfélagsins www.floahreppur.is
Eldri borgurum og öryrkjum með lögheimili í Flóahreppi er sérstaklega bent á að kanna rétt varðandi afslátt af fasteignagjöldum íbúðarhúsa í eigu þeirra og bent á að kynna sér reglur Flóahrepps og samþykkt um tekjuviðmið á heimasíðu sveitarfélagsins.
Þeim sem óska frekari upplýsinga um álagninguna er bent á skrifstofu Flóahrepps í síma: 480-4370 frá kl. 9.00 – 13:00.
Sveitarstjóri Flóahrepps