“Þann 24. janúar rennur út umsóknarfrestur fyrir frumkvöðla og aðra hugmyndasmiði í viðskiptahraðalinn Startup Orkídea. Startup Orkídea er samstarfsverkefni Icelandic Startups og Orkídeu. Umsjón með framkvæmd verkefnisins er í höndum Icelandic Startups sem hefur til fjölda ára aðstoðað frumkvöðla við að hraða ferlinu frá því að hugmynd kviknar þar til viðskipti taka að blómstra. Icelandic Startups starfar náið með frumkvöðlum, háskólum, fjárfestum, atvinnulífinu, hagsmunasamtökum og hinu opinbera að því að efla frumkvöðlastarf og byggja upp nýsköpunarumhverfið á Íslandi.”
Sveinn Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri (s. 698 9644) sveinn@orkidea.is
Helga Gunnlaugsdóttir, rannsókna- og þróunarstjóri (s. 698 7739) helga@orkidea.is