Það hefur ekki verið mikið um gestakomur á skrifstofu Flóahreppw útaf "dottlu" en í gær mættu Jón M. Ívarsson og Sigmundur Stefánsson með árituð eintök aFFlóamannabók. Fyrsta áfanga af þremur við ritun Flóamannabókar lauk haustið 2020 með útgáfu tveggja binda sem fjalla um Hraungerðishrepp, sögu og ábúendur. Bækurnar eru ríkulega myndskreyttar og fjallað er um fjölda örnefna. Vinna við þennan hluta er búin að taka 5 ár. Næstur í röðinni verður Villingaholtshreppur og útgáfa áætluð á árinu 2023. Jón M. Ívarsson sem ritar bókina er studdur dyggilega að öflugri ritnefnd og er Sigmundur gjaldkeri verkefnisins. Árni Eiríksson oddviti Flóahrepps færði Jóni og Sigmundi blómvendi og flutti árnaðaróskir og kveðjur til ritnefndar af þessu tilefni. Ég fékk þá félaga til þess að taka niður sóttvarnargrímurnar eitt augnablik rétt á meðan náðist að smella mynd af þeim af þessu tilefni. EÞI/eþi