• 480 4370
  • floahreppur@floahreppur.is
logo-vefurlogo-stickylogo-vefurlogo-vefur
  • STJÓRNSÝSLA OG SKÓLAR
    • Eyðublöð – samþykktir – reglur
    • Gjaldskrár
    • Fundargerðir
    • Skólar
    • Stofnanir
    • Skipulagsmál
    • Aðalskipulag Flóahrepps 2016-2028
  • ÞJÓNUSTA
    • Stefna Flóarhepps – flettibókin
    • Flóaljós
    • Gagnleg símanúmer
    • Vatnsveita
    • Félagsheimili
    • Hundafangari
    • Sorpflokkun – spurt og svarað
  • FERÐAÞJÓNUSTA
    • Kortasjá Suðurland
    • Bæklingur – The animation of Flóahreppur
    • Áhugaverðir staðir
    • Gistimöguleikar
    • Afþreying, veitingar og verslun
    • Menningarferð um Flóahrepp
  • MANNLÍF OG MENNING
    • Áveitan
    • Atvinnulíf
    • Félagasamtök
    • Viðburðir
    • Fjör í Flóa og Tónahátíð
  • FERÐAÞJÓNUSTA
    • Kortasjá Suðurland
    • Bæklingur – The animation of Flóahreppur
    • Áhugaverðir staðir
    • Gistimöguleikar
    • Afþreying, veitingar og verslun
    • Menningarferð um Flóahrepp
  • MANNLÍF OG MENNING
    • Áveitan
    • Atvinnulíf
    • Félagasamtök
    • Viðburðir
    • Fjör í Flóa og Tónahátíð
0
  • Heim
  • Fréttir
  • Íþrótta- og tómstundastyrkur Félagsmálaráðuneytis til tekjulægri heimila

Íþrótta- og tómstundastyrkur Félagsmálaráðuneytis til tekjulægri heimila

23. nóvember, 2020
Flokkar
  • Fréttir
Stikkorð

Opnað hefur verið fyrir umsóknir á sérstökum íþrótta- og tómstundastyrkjum fyrir börn sem búa á tekjulægri heimilum þar sem markmiðið er að jafna tækifæri þeirra til þátttöku í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi. Styrkirnir koma til viðbótar hefðbundnum íþrótta- og tómstundastyrkjum sveitarfélaga. Alls verður um 900 milljónum króna varið í verkefnið árin 2020 og 2021 en Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, kynnti aðgerðina í vor og er hún hluti af aðgerðapakka sem ætlað er að veita mótvægi vegna þeirra áhrifa sem Covid-19 faraldurinn hefur haft á afkomu efnaminni heimila í landinu. Í framhaldinu verður ráðist í vitundavakningu í samstarfi við menntamálaráðuneytið, sveitarfélög, Íþróttasamband Íslands og Ungmennafélag Íslands.

Hægt er að sækja um styrk fyrir börn sem fædd eru á árunum 2005-2014, eiga  lögheimili í Flóahreppi þar sem heildartekjur heimilisins voru að meðaltali lægri en 740.000 kr. á mánuði á tímabilinu mars – júlí 2020. Styrkurinn er 45.000 kr. á hvert barn og um 13.000 börn eiga rétt á styrknum. Sveitarfélögin annast afgreiðslu styrkumsókna eftir að búið er að kanna rétt til styrksins inni á Ísland.is. 

Slóð á rafrænt umsóknareyðublað má nálgast hér á heimasíðu Flóahrepps undir Stjórnsýsla, eyðublöð. https://www.floahreppur.is/ithrotta-og-tomstundarstyrkur-barna/

Styrkina er hægt að nota til  niðurgreiðslu á þátttökugjöldum vegna íþróttaiðkunar, tónlistarnáms eða annarra tómstunda. Sveitarfélög setja reglur um úthlutun styrkjanna en fyrirkomulag getur verið breytilegt á milli sveitarfélaga til dæmis varðandi hvaða íþrótta- og tómstundastarf er styrkhæft, hvaða gögnum beri að skila með umsókn og afgreiðslutími umsókna.

Rannsóknir hafa sýnt að mikilvægt er að halda börnum virkum í íþrótta- og frístundastarfi og tryggja jafnt aðgengi barna og unglinga að slíku starfi. Lögð hefur verið áhersla á að ná til sem flestra forráðamanna og hefur því verið komið af stað kynningarátaki á fjölda tungumála um íþrótta- og tómstundastyrkina. Útbúin hafa verið 11 myndbönd til þess að verkja athygli á styrknum og má sjá þau hér. 

Deila
Skrifstofa Flóahrepps er opin frá kl. 09:00 - 16:00 mánudaga - fimmtudaga og 09:00 - 13:00 á föstudögum.
Síminn 480 4370 er opinn frá kl. 09:00 - 13:00 alla virka daga.
0

    Nafn (nauðsynlegt)

    Netfang (nauðsynlegt)

    Efni

    Skilaboð