Alþjóðlegi klósettdagurinn er 19. nóvember
Eru ekki allir orðnir langþreyttir á bilunum og stíflum í fráveitukerfunum vegna úrgangs?
Samorka og Umhverfisstofnun hafa í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga og heilbrigðiseftirlitin látið gera kynningarefni frítt fyrir alla sem vilja boða með okkur einfaldan boðskap. Með jákvæðum og einföldum skilaboðum hvetjum við alla til að setja bara piss, kúk og klósettpappír í klósettin.
Á vefsíðunni www.klosettvinir.is finnið þið allt sem þarf til að fræða fólk um að bara piss, kúkur og klósettpappír eiga heima í klósettinu!
Fimmtudagurinn 19. nóvember er Alþjóðlegi klósettdagurinn og þá er upplagt að minna fólk á hvað má fara í klósettið.
Með samtakamætti höfum við tækifæri til að breyta hegðun fólks til langs tíma. Grípum tækifærið og verum með!