Mótaðu framtíðina með okkur
Í vetur settum við stað vinnu við stefnumótun sveitarfélagsis með heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna að leiðarljósi. Hluti þeirrar vinnu er mótun á stefnu til framtíðar, val á gildum og framtíðarsýn samfélagsins ásamt kynningu á heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Ef þú brennur fyrir framtíð sveitarfélagsins þá viljum við bjóða þér til íbúafundar þann 11. júní næstkomandi frá kl. 20:00-22:00 í Þingborg. Við viljum heyra hvað þér finnst og hvernig þú sérð framtíðina fyrir þér í Flóanum fríða.
Á fundinum munu sveitarstjóri/oddviti ásamt Evu Magnúsdóttur, ráðgjafa hjá Podium kynna þá vinnu sem þegar hefur farið fram. Einnig verður kynnt könnun sem nýlega var framkvæmd á heimasíðu og facebooksíðu sveitarfélagsins á framtíðargildum sveitarfélagsins. Að auki verður Viktoría Valdimarsdóttir, ráðgjafi hjá Ábyrgum lausnum/Snjólaug Ólafsdóttir hjá Andrými, með fyrirlestur um hringrásarhagkerfið. Að síðustu mun Eva Magnúsdóttir leiða vinnustofu um framtíðarsýn íbúanna fyrir sveitarfélagið.
Sjá mynd og hlekk á íbúakönnun á facebooksíðu Flóahrepps
Íbúafundur 11.06. 2020 klukkan 20.00 í Þingborg
Sveitarstjórn Flóahrepps