90% þeirra sem svöruðu könnun Flóahrepps líkar vel að búa í sveitarfélaginu
Sveitarfélagið Flóahreppur setti í vetur af stað vinnu við stefnumótun sveitarfélagsis með heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna að leiðarljósi. Í síðustu viku var haldinn íbúafundur þar sem kynnt var könnun sem gerð var á facebook og heimasíðu Flóahrepps. Könnunin var lögð fyrir dagana 27. maí – 7. júní og bárust 49 svör. Könnunin gefur einungis vísbendingar um stöðuna.
Í spurningakönnuninni voru íbúar spurðir 5 spurninga og eru niðurstöðurnar eftirfarandi:
55% svarenda telja þjónustu við íbúa vera góða eða mjög góða og 26,5% telja hana vera í meðallagi. Tæp 90% svarenda líkar vel að búa í sveitarfélaginu. Tæp 39% þekkja heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna í meðallagi vel og samtals eru tæp 15% sem þekkja mjög vel eða vel til þeirra sem er ágætis byrjun. Samvinna skorar hæst sem gildi sveitarfélagsins og þá umhverfi og siðan sjálfbærni og framsækni. Lagt var til á fundinum að orðið sjálfbærni sem tekur einnig á umhverfisþættinum verði eitt af gildum sveitarfélagsins sem þá yrðu: Samvinna, sjálfbærni og framsækni. Aðspurðir um hverjar ættu að vera áherslur sveitarfélagsins þá töldu tæp 37% svarenda að sveitarfélagið ætti að leggja höfuðáherslu á þjónustu við íbúa, 18,5% sögðu að áherslan ætti að vera á sjálfbærni og umhverfismál, 16,3% á atvinnumál, 18,4% á skólamál og 10,2% á lýðræðismál.
Við munum með haustinu kynna enn frekar stefnumótun með heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna að leiðarljósi meðal annars með fræðsluerindum og námskeiðum.
Niðurstodur konnunar ibuafundur