• 480 4370
  • floahreppur@floahreppur.is
logo-vefurlogo-stickylogo-vefurlogo-vefur
  • STJÓRNSÝSLA OG SKÓLAR
    • Aðalskipulag Flóahrepps 2016-2028
    • Gjaldskrár
    • Skólar
    • Stofnanir
    • Eyðublöð – samþykktir – reglur
    • Skipulagsmál
    • Fundargerðir
  • ÞJÓNUSTA
    • Stefna Flóarhepps – flettibókin
    • Flóaljós
    • Gagnleg símanúmer
    • Vatnsveita
    • Félagsheimili
    • Hundafangari
    • Sorpflokkun – spurt og svarað
  • FERÐAÞJÓNUSTA
    • Áhugaverðir staðir
    • Gistimöguleikar
    • Afþreying, veitingar og verslun
    • Kort af Flóahreppi
    • Menningarferð um Flóahrepp
    • Bæklingur – The animation of Flóahreppur
  • MANNLÍF OG MENNING
    • Atvinnulíf
    • Félagasamtök
    • Áveitan
    • Viðburðir
    • Fjör í Flóa 2019
    • Tónahátíð félagsheimilanna 2018
  • FERÐAÞJÓNUSTA
    • Áhugaverðir staðir
    • Gistimöguleikar
    • Afþreying, veitingar og verslun
    • Kort af Flóahreppi
    • Menningarferð um Flóahrepp
    • Bæklingur – The animation of Flóahreppur
  • MANNLÍF OG MENNING
    • Atvinnulíf
    • Félagasamtök
    • Áveitan
    • Viðburðir
    • Fjör í Flóa 2019
    • Tónahátíð félagsheimilanna 2018
  • Heim
  • Auglýsingar og tilkynningar
  • Samstarfssamningur um mótun landshlutateymis í málefnum fatlaðra barna á Suðurlandi

Samstarfssamningur um mótun landshlutateymis í málefnum fatlaðra barna á Suðurlandi

20. maí 2020
Flokkar
  • Auglýsingar og tilkynningar
Stikkorð

Samstarfssamningur um mótun landshlutateymis í málefnum fatlaðra barna á Suðurlandi

 

 

Nýr samstarfssamningur um mótun landshlutateymis á Suðurlandi hefur verið undirritaður. Um er að ræða tveggja ára þróunarverkefni í samræmi við Framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks 2017 – 2021 sem miðar að því að styrkja grunnþjónustu í héraði.  Aðilar að samningnum eru Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins, Heilbrigðisstofnun Suðurlands, Fjölskyldusvið Árborgar, Félags- og skólaþjónusta Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu og Velferðar- og skólaþjónusta Árnesþings.

 

Landshlutateymið byggir á þverfaglegu samstarfi þar sem fulltrúar félags-, skóla- og heilbrigðisþjónustu frá hverju svæði mynda samstarfsteymi með það að markmiði að stuðla að heildstæðri þjónustu við fötluð börn með sértækar þarfir og fjölskyldur þeirra. Tilgangur teymisins er einnig  að auka samvinnu og samráð á milli Greiningar- og ráðgjafarstöðvar og þjónustuaðila í heimabyggð við greiningarferli, eftirfylgd, íhlutunarleiðir, ráðgjöf og skipulag fræðslu til að stuðla að sérhæfðri þekkingaruppbyggingu. 

 

Sigríður O. Guðjónsdóttir frá Greiningar- og ráðgjafarstöð  og Kristín Björk Jóhannsdóttir frá Fjölskyldusviði Árborgar hafa verið ráðnar sem verkefnastjórar verkefnisins.  Sigríður er iðjuþjálfi að mennt með viðbótarmenntun í sérkennslufræðum. Hún hefur víðtæka reynslu af vinnu með börnum með fatlanir og fjölskyldum þeirra hér á landi, í Noregi og Danmörku. Kristín Björk er þroskaþjálfi og kennari að mennt auk þess að vera með viðbótarmenntun í fötlunarfræðum og ráðgjöf. Hún hefur starfað um árabil við sérdeild Suðurlands  sem þroskaþjálfi, kennari, við ráðgjöf og sem deildarstjóri.

Deila
Skrifstofa Flóahrepps er opin frá kl. 09:00 - 16:00 mánudaga - fimmtudaga og 09:00 - 13:00 á föstudögum.
Síminn 480 4370 er opinn frá kl. 09:00 - 13:00 alla virka daga.

    Nafn (nauðsynlegt)

    Netfang (nauðsynlegt)

    Efni

    Skilaboð