Sumarstarf og útivera í Flóahreppi
Flokkstjórar í vinnuskóla Flóahrepps
Ertu að leita að skemmtilegu starfi í sumar?
Flóahreppur óskar eftir að ráða flokkstjóra í vinnuskóla
Flóahrepps. Leitað er að öflugum einstaklingum sem eiga
auðvelt með samskipti og hafa gaman af því að starfa með
unglingum og ungmennum. Flokkstjórar undirbúa verkefni
vinnuskólans ásamt umsjónarmanni fasteigna og þeir starfa
einnig með húsvörðum í fasteignum sveitarfélagsins.
Umsóknir um starfið ásamt sakavottorði berist skrifstofu
Flóahrepps fyrir 2. apríl á netfangið floahreppur@floahreppur.is
Nánari upplýsingar í síma 480 4370.