Basar í Þingborg 3. nóvember
Kvenfélögin í Flóahreppi standa sameiginlega að basar, sem haldinn verður í Félagsheimilinu Þingborg, laugardaginn 3. nóvember 2018 frá kl. 13.00-17.00.
Öll innkoma rennur til áhaldakaupa í sjúkrabifreiðar Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, en HSU gerir út tíu sjúkrabíla, þar af fjóra hér í Árnessýslu. Við ætlum að kaupa „barkaspegla“, í þrjá vonandi fjóra sjúkrabíla, en það er tæki sem notað er til að hjálpa til með öndun hjá börnum og fullorðnum. Þetta nýja tæki er árangursríkara og öruggara í notkun en þau tæki sem eru til.
Fjölbreytt vandað handverk verður til sölu, ásamt kökubasar og seldar verða vöfflur og kaffi.
Tekið verður við greiðslukortum.
Við hlökkum til að sjá þig.
Kvenfélög Gaulverjabæjarhrepps,
Hraungerðishrepps og Villingaholtshrepps.