Kæri íbúi Flóahrepps.
Mánudaginn 1. október nk. bjóðum við ykkur á Diskósúpufund um atvinnu- og umhverfismál.
Fundurinn verður haldinn í Þingborg og hefst kl. 19:00 þar sem boðið verður upp á svokallaða Diskósúpu.
Fundarefni:
1. Kynning á Reko hugmyndinni. Nýtt form á sölu og dreifingu matvæla frá smáframleiðendum beint til neytenda með aðstoð samfélagsmiðla.
2. Kynning á Uppbyggingasjóði Suðurlands. Ertu með frábæra hugmynd? Sendu inn umsókn.
3. Umhverfis Suðurland – Sunnlenskt átak í umhverfismálum. Í október er umfjöllunarefnið matarsóun og er Diskósúpan liður í því.
4. Almennt spjall um atvinnu- og umhverfismál ef tími leyfir.
Við vonumst til að sjá sem flesta á fundinum.
Atvinnu- og umhverfisnefnd Flóahrepps.