Frá Kvenfélagi Hraungerðishrepps
Jólafundur Kvenfélags Hraungerðishrepps verður haldinn fimmtudagskvöldið 14. desember kl. 19:30.
Kvöldmatur verður borinn fram og í kjölfarið fundum við.
Dagskrá fundarins er eftirfarandi:
Fundarsetning
Lesin fundargerð síðasta fundar
Farið yfir starfið og rætt hvað er framundan
Lesin fundargerð frá formannafundi SSK
Inntaka nýrra félaga
Önnur mál
Eftir fund verður pakkaleikur og eru kvenfélagkonur beðnar um að
koma með pakka (kostnaður ekki meira en 1500).
Minnum á að jólakort og englar SSK eru til sölu á staðnum.
Matarhópur: Valdís Bjarnþórsdóttir, Veronika Narfadóttir, Anna
Lilja Reynisdóttir og Bryndís Rósantsdóttir.
Mætum hressar og kátar með jólaskapið meðferðis
Jólakveðja
Stjórnin