Framlagning kjörskrár fyrir Flóahrepp vegna kosninga til Alþingis 29. október 2016
Kjörskrá vegna kosninga til alþingis 29. október 2016 hefur verið lögð fram á skrifstofu Flóahrepps.
Kjörskráin liggur frammi á skrifstofu Flóahrepps öllum almenningi til sýnis á skrifstofutíma, mánudaga – fimmtudaga frá klukkan 9:00 – 16:00 og föstudaga frá klukkan 9:00 – 13:00.
Sveitarstjóri Flóahrepps
Einnig er hægt að nálgast upplýsingar með því að skrá eftirfarandi slóð: www.kosning.is/althingiskosningar-2016/kjorskra/ og fá upplýsingar um hvar viðkomandi er á kjörskrá.