Íbúafundur í Þingborg vegna gossins í Holuhrauni.
Almannavarnir í Árnessýslu standa fyrir íbúafundi í Þingborg fimmtudaginn 2. október næstkomandi klukkan 20.00 um möguleg áhrif yfirvofandi loftmengunar og flóðahættu vegna gossins í Holuhrauni. Framsögumenn verða Oddur Árnason yfirlögregluþjónn í Árnessýslu og Kristján Einarsson framkvæmdastjóri Almannavarna Árnessýslu og slökkviliðsstjóri Brunavarna Árnessýslu.
Almannavarnir Árnessýslu