Skrifað hefur verið undir samning við hestamannafélagið Sleipni með það að markmiði að búa sem best að barna- og unglingastarfi félagsins og efla hestaíþróttir fyrir börn og ungmenni í sveitarfélaginu.
Flóahreppur styrkir barna- og ungmennastarf Sleipnis um 200.000 kr á árinu ásamt því að leggja til einn starfsmann í Reiðskóla Sleipnis sem fram fer yfir sumartímann. Hestamannafélagið stendur fyrir árlegri kynningu á námskeiðum og barnastarfi félagsins og opnum reiðnámskeiðum fyrir börn og ungmenni. Hestamannafélagið Sleipnir hefur hlotið gæðaviðurkenningu sem fyrirmyndarfélag innan ÍSÍ og Ólympíusambands Íslands.
Á myndinni eru Sigríður M. Björgvinsdóttir formaður Æskulýðsnefndar Sleipnis, Margrét Sigurðardóttir sveitarstjóri Flóahrepps og Magnús Ólason formaður Sleipnis við undirritun samnings.