Tónahátíð félagsheimilanna í Flóahreppi hefur hlotið styrk frá Menningarráði Suðurlands, 250.000 kr. Styrkir Menningarráðs voru afhentir í Listasafni Árnesinga föstudaginn 20. júní s.l. við hátíðlega athöfn.
Tónahátíðin sem er röð tónleika í félagsheimilum Flóahrepps, hefur verið haldin árvisst um alllangt skeið. Það er rekstrarstjórn félagsheimilanna ásamt húsvörðum sem staðið hafa fyrir undirbúningi og skipulagningu Tónahátíðar. Markmiðið með hátíðinni er að setja upp fjölbreytta tónlistarviðburði sem höfða eiga til sem flestra aldurshópa og hlómlistarunnenda ásamt því að halda úti menningarstarfi í sveitarfélaginu fyrir íbúa jafnt sem aðra landsmenn.
Flóahreppur sótti einnig um styrk hjá Menningarráði til að setja upp upplýsingaskilti um Ásgrím Jónsson, listmálara en áhugi er fyrir því að gera honum hærra undir höfði á þeim stað þar sem hann var fæddur og uppalinn, með upplýsingaskilti í Timburhólaskógi við Rútsstaðaland þaðan sem Ásgrímur var frá. Hugmyndin var að tengja verkefnið ýmsum uppákomum í tengslum við Húsið á Eyrabakka og Listasafn Árnesinga. Menningarráð hafnaði þeirri umsókn.
Á meðfylgjandi mynd sem tekin var í Listasafni Árnesinga er Ingibjörg Einarsdóttir, húsvörður í Þingborg með skjal vegna styrkveitingar fyrir Tónahátíð félagsheimilanna. Þess má til gamans geta að vasinn sem Ingibjörg stendur hjá er úr safni Ólafs og Bergþóru í Tré og list, Forsæti.