Fundargerð 142. fundar sveitarstjórnar Flóahrepps
Fundarstaður: Þingborg
Fundardagur: Mánudagur 16. júní 2014
Fundartími: 20:00 – 23.15
Fundarmenn: Árni Eiríksson, Svanhvít Hermannsdóttir, Stefán Geirsson, Sigurbára Rúnarsdóttir, Elín Höskuldsdóttir, Margrét Sigurðardóttir, sveitarstjóri
Svanhvít Hermannsdóttir setti fund bauð fundargesti velkomna. Margrét Sigurðardóttir ritaði fundargerð.
Samþykkt að fundargerð verði rituð á tölvu sbr. 23. gr. sveitarstjórnarlaga.
Dagskrá:
Skrifleg kosning um oddvita og varaoddvita fer fram samkvæmt 13. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Árni Eiríksson er kjörinn oddviti Flóahrepps með 5 atkvæðum.
Margrét Jónsdóttir er kjörinn varaoddviti Flóahrepps með 5 atkvæðum.
Sveitarstjórn samþykkir að kjörtímabil oddvita og varaoddvita sé hið sama og sveitarstjórnar sbr. 7.mgr. 13. gr. sveitarstjórnarlaga.
Samþykkt með 5 atkvæðum.
Til fjögurra ára:
Skipulags- og byggingarnefnd:
Aðalmaður: Árni Eiríksson
Varamaður: Margrét Jónsdóttir
Skipulagsfulltrúi uppsveita bs. Byggðasamlag:
Aðalmaður: Árni Eiríksson
Varamaður: Margrét Jónsdóttir
Samþykkt með 5 atkvæðum
Kjörstjórn:
Aðalmenn: Gísli Hauksson, formaður
Ingjaldur Ásmundsson
Ragna Larsen
Varamenn: Ólafur Þór Þórarinsson
Baldur Sveinsson
Rannveig Árnadóttir
Samþykkt með 5 atkvæðum
Fræðlunefnd:
Aðalmenn: Hilda Pálmadóttir, formaður
Katharina Mareike Schacht
Bjarni Stefánsson
Ágúst Valgarð Ólafsson
Anný Ingimarsdóttir
Varamenn: Halla Reynisdóttir
Margrét Jónsdóttir
Ágúst Ingi Ketilsson
Iðunn Ýr Ásgeirsdóttir
Ólöf Ósk Magnúsdóttir
Samþykkt með 5 atkvæðum
Atvinnu- og umhverfisnefnd:
Aðalmenn: Ingunn Jónsdóttir, formaður
Helgi Sigurðsson
Victor Björgvin Victorsson
Rósa Matthíasdóttir
Jóhann Helgi Hlöðversson
Varamenn: Reynir Jónsson
Hrafnkell Guðnason
Margrét Sigfúsdóttir
Benedikt Hans Kristjánsson
Ragna Larsen
Samþykkt með 5 atkvæðum
Æskulýðs- og tómstundanefnd:
Aðalmenn: Rannveig Árnadóttir, formaður
Davíð Ingi Baldursson
Sigurður Ingi Sigurðsson
Varamenn: Sigurbára Rúnarsdóttir
Thelma Dröfn Ásmundsdóttir
Anný Ingimarsdóttir
Samþykkt með 5 atkvæðum
Rekstrarstjórn félagsheimila:
Aðalmenn: Stefán Geirsson, formaður
Rósa Matthíasdóttir
Varamenn: Baldur Eiðsson
Elín Höskuldsdóttir
Samþykkt með 5 atkvæðum
Afréttarmálafélag Flóa og Skeiða:
Aðalmenn: Reynir Þór Jónsson
Elín Magnúsdóttir
Skeggi Gunnarsson
Svanhvít Hermannsdóttir
Varamenn: Þorsteinn Logi Einarsson
Einar Hjálmarsson
Ágúst Hjálmarsson
Brynjar Jón Stefánsson
Samþykkt með 5 atkvæðum
Skólaþjónustu- og velferðarnefnd:
Aðalmaður: Sigurbára Rúnarsdóttir
Varamaður: Sigríður Harðardóttir
Samþykkt með 5 atkvæðum
Nefnd oddvita og sveitarstjóra, yfirstjórn sameiginlegrar skóla- og velferðarþjónustu og Skólaþjónustu- og velferðarnefnd Árnesþings:
Aðalmaður: Árni Eiríksson
Varamaður: Margrét Jónsdóttir
Samþykkt með 5 atkvæðum
Fulltrúi í Héraðsnefnd Árnesinga:
Aðalmaður: Árni Eiríksson
Varamaður: Margrét Jónsdóttir
Áheyrnarfulltrúi minnihluta í Héraðsnefnd Árnesinga:
Aðalmaður: Svanhvít Hermannsdóttir
Varamaður: Elín Höskuldsdóttir
Samþykkt 5 atkvæðum
Fulltrúi á landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga:
Aðalmaður: Árni Eiríksson
Varamaður: Margrét Jónsdóttir
Samþykkt með 5 atkvæðum
Almannavarnir Árnessýslu:
Aðalmaður: Sveitarstjóri Flóahrepps
Varamaður: Árni Eiríksson
Samþykkt með 5 atkvæðum
Fulltrúi á aðalfund Sveitarfélaga á köldum svæðum:
Aðalmaður: Sveitarstjóri Flóahrepps
Varamaður: Árni Eiríksson
Samþykkt með 5 atkvæðum
Fulltrúi á aðalfund Jöfnunarsjóðs:
Aðalmaður: Sveitarstjóri Flóahrepps
Varamaður: Árni Eiríksson
Samþykkt með 5 atkvæðum
Fulltrúi á aðalfund Orkusveitarfélaga:
Aðalmaður: Árni Eiríksson
Varamaður: Sveitarstjóri Flóahrepps
Samþykkt með 5 atkvæðum
Til eins árs:
Fulltrúar á aðalfundi SASS og Heilbrigðiseftirlits Suðurlands:
Aðalmenn: Árni Eiríksson
Margrét Jónsdóttir
Svanhvít Hermannsdóttir
Varamenn: Sigurbára Rúnarsdóttir
Stefán Geirsson
Elín Höskuldsdóttir
Samþykkt með 5 atkvæðum
Fulltrúi á aðalfund Sorpstöðvar Suðurlands:
Aðalmaður: Árni Eiríksson
Varamaður: Margrét Jónsdóttir
Samþykkt með 5 atkvæðum
Fulltrúi á aðalfund Eignarhaldsfélags Suðurlands:
Aðalmaður: Sveitarstjóri Flóahrepps
Varamaður: Árni Eiríksson
Samþykkt með 5 atkvæðum
Sveitarstjórn samþykkir að starf oddvita Flóahrepps verði metið sem 45% stöðugildi. Skoðað verður við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2016 hvort 45% starfshlutfall sé hæfilegt eða hvort breytinga sé þörf. Sveitarstjóra er falið að ganga frá ráðningu oddvita sem starfsmanns sveitarfélagsins.
Samþykkt með 5 atkvæðum.
Sveitarstjórn samþykkir að ráða sveitarstjóra Flóahrepps.
Sveitarstjórn hefur samþykkt með tölvupósti, tilboð frá Capacent dags. 6. júní 2014 um ráðgjöf vegna ráðningar sveitarstjóra. Tilboðið hljóðar upp á 441.000 kr. auk auglýsingakostnaðar, 202.320 kr.
Sveitarstjórn samþykkir að ráðningarsamingur við Margréti Sigurðardóttur sveitarstjóra verður framlengdur um einn mánuð eða til 1. ágúst n.k.
Samþykkt með 5 atkvæðum.
Sveitarstjórn samþykkir að reglulegir fundir sveitarstjórnar verði haldnir fyrsta miðvikudag hvers mánaðar kl. 19.00. Næsti fundur verður miðvikudaginn 2. júlí kl. 19.00.
Samþykkt með 5 atkvæðum.
Greiðslur til sveitarstjórnarmanna og kjörinna fulltrúa í nefndum á vegum Flóahrepps taka mið af þingfarakaupi sem er 630.025 kr. þann 1. mars 2013.
Greiðslur taka breytingum samkvæmt þeim breytingum sem verða á þingfararkaupi. Greiðsla akstursgjalds er samkvæmt nýjustu auglýsingu ferðakostnaðarnefndar Fjármála- og efnahagsráðuneytis hverju sinni.
Samþykkt með 5 atkvæðum
b) Greiðslur til oddvita Flóahrepps
Sveitarstjórn samþykkir að laun oddvita verði bundið þingfarakaupi og verði 45% af því. Auk þess verður greiddur símakostnaður og allur akstur í þágu sveitarfélagsins samkvæmt akstursdagbók.
Samþykkt með 5 atkvæðum.
c) Greiðslur til sveitarstjórnarmanna í Flóahreppi
Sveitarstjórn samþykkir að mánaðarlaun sveitarstjórnarmanna verði 10 % af þingfararkaupi. Undir þá greiðslu falla allir fundir sveitarstjórnar og önnur störf innan sveitar vegna setu í sveitarstjórn.
Sveitarstjórnarmenn fá allan akstur vegna starfa sinna fyrir sveitarfélagið greiddan samkvæmt akstursdagbók, æskilegt er að þeir samnýti ferðir eins og kostur er.
Sveitarstjórnarmenn geta sótt fundi, námskeið og ráðstefnur sem nýtast í störfum þeirra á vegum Flóahrepps í samráði við sveitarstjóra. Laun fyrir heilsdagsfundi utan sveitar á vegum sveitarfélagsins verði 4 % af þingfararkaupi. Laun fyrir styttri fundi utan sveitar á vegum sveitarfélagsins verði 2 % af þingfararkaupi.
Varamenn í sveitarstjórn fá greitt sem nemur 50% af mánaðarlaunum aðalmanna fyrir hvern fund sem þeir sitja. Varamenn í sveitarstjórn fá greiddan akstur vegna starfa sinna fyrir sveitarfélagið samkvæmt akstursdagbók.
Samþykkt með 5 atkvæðum.
d) Greiðslur til fræðslunefndar Flóahrepps
Sveitarstjórn samþykkir að laun formanns fræðslunefndar verði 4% af þingfararkaupi fyrir hvern fund nefndarinnar og laun annara fræðslunefndarmanna verða 2,5 % af þingfararkaupi fyrir hvern fund.
Fræðslunefndarmenn fá allan akstur vegna starfa sinna fyrir sveitarfélagið greiddan samkvæmt akstursdagbók, æskilegt er að þeir samnýti ferðir eins og kostur er.
Fræðslunefnd skal funda allt að átta sinnum á ári. Formaður fræðslunefndar getur, í samráði við sveitarstjóra, boðað til aukafundar ef talin er ástæða til.
Nefndarmenn geta sótt fundi, námskeið og ráðstefnur sem nýtast í nefndarstörfu þeirra á vegum Flóahrepps í samráði við sveitarstjóra. Laun fyrir heilsdagsfundi utan sveitar á vegum sveitarfélagsins verði 4 % af þingfararkaupi. Laun fyrir styttri fundi utan sveitar á vegum sveitarfélagsins verði 2 % af þingfararkaupi.
Áheyrnarfulltrúar á fræðslunefndarfundum fá greitt 1,5 % af þingfararkaupi. Ekki er greiddur aksturskostnaður fyrir áheyrnarfulltrúa.
Varamenn í fræðslunefnd njóta sömu kjara og aðalmenn fyrir þá fundi sem þeir sitja.
Samþykkt með 5 atkvæðum.
e) Greiðslur til atvinnu- og umhverfisnefndar Flóahrepps
Sveitarstjórn samþykkir að laun formanns verði 3% af þingfararkaupi fyrir hvern fund nefndar og laun annarra nefndarmanna verði 2% af þingfararkaupi fyrir hvern fund. Nefndarmenn fá allan akstur vegna starfa sinna fyrir sveitarfélagið greiddan samkvæmt akstursdagbók, æskilegt er að þeir samnýti ferðir eins og kostur er.
Atvinnu- og umhverfisnefnd skal funda allt að átta sinnum á ári. Formaður nefndar getur, í samráði við sveitarstjóra, boðað til aukafundar ef talin er ástæða til.
Nefndarmenn geta sótt fundi, námskeið og ráðstefnur sem nýtast í nefndarstörfum þeirra á vegum Flóahrepps í samráði við sveitarstjóra. Laun fyrir heilsdagsfundi utan sveitar á vegum sveitarfélagsins verði 4 % af þingfararkaupi. Laun fyrir styttri fundi utan sveitar á vegum sveitarfélagsins verði 2 % af þingfararkaupi.
Varamenn í atvinnu- og umhverfisnefnd njóta sömu kjara og aðalmenn fyrir þá fundi sem þeir sitja.
Samþykkt með 5 atkvæðum.
f) Greiðslur til æskulýðs- og tómstundanefndar Flóahrepps
Sveitarstjórn samþykkir að laun formanns verði 3% af þingfararkaupi fyrir hvern fund nefndar og laun annarra nefndarmanna verði 2% af þingfararkaupi fyrir hvern fund. Nefndarmenn fá allan akstur vegna starfa sinna fyrir sveitarfélagið greiddan samkvæmt akstursdagbók, æskilegt er að þeir samnýti ferðir eins og kostur er.
Æskulýðs- og tómstundanefnd skal funda allt að fimm sinnum á ári. Formaður nefndar getur, í samráði við sveitarstjóra, boðað til aukafundar ef talin er ástæða til.
Nefndarmenn geta sótt fundi, námskeið og ráðstefnur sem nýtast í nefndarstörfum þeirra á vegum Flóahrepps í samráði við sveitarstjóra. Laun fyrir heilsdagsfundi utan sveitar á vegum sveitarfélagsins verði 4 % af þingfararkaupi.Laun fyrir styttri fundi utan sveitar á vegum sveitarfélagsins verði 2 % af þingfararkaupi.
Varamenn í æskulýðs- og tómstundanefnd njóta sömu kjara og aðalmenn fyrir þá fundi sem þeir sitja.
Samþykkt með 5 atkvæðum.
g) Greiðslur til rekstrarstjórnar félagsheimila Flóahrepps
Sveitarstjórn samþykkir að laun formanns verði 3% af þingfararkaupi fyrir hvern fund nefndar og laun annarra nefndarmanna verði 2% af þingfararkaupi fyrir hvern fund. Nefndarmenn fá allan akstur vegna starfa sinna fyrir sveitarfélagið greiddan samkvæmt akstursdagbók, æskilegt er að þeir samnýti ferðir eins og kostur er.
Rekstrarstjórn skal funda allt að átta sinnum á ári. Formaður nefndar getur, í samráði við sveitarstjóra, boðað til aukafundar ef talin er ástæða til.
Nefndarmenn geta sótt fundi, námskeið og ráðstefnur sem nýtast í nefndarstörfum þeirra á vegum Flóahrepps í samráði við sveitarstjóra. Laun fyrir heilsdagsfundi utan sveitar á vegum sveitarfélagsins verði 4 % af þingfararkaupi. Laun fyrir styttri fundi utan sveitar á vegum sveitarfélagsins verði 2 % af þingfararkaupi.
Varamenn í rekstrarstjórn njóta sömu kjara og aðalmenn fyrir þá fundi sem þeir sitja.
Samþykkt með 5 atkvæðum.
h) Greiðslur til fulltrúa á aðalfundi afréttamálafélags Flóa og Skeiða
Sveitarstjórn samþykkir að laun fulltrúa á aðalfundi afréttarmálafélags Flóa og Skeiða verði 2% af þingfararkaupi fyrir hvern fund. Fulltrúar fá allan akstur vegna starfa sinna fyrir sveitarfélagið greiddan samkvæmt akstursdagbók, æskilegt er að þeir samnýti ferðir eins og kostur er.
Varamenn njóta sömu kjara og aðalmenn fyrir þá fundi sem þeir sitja.
Samþykkt með 5 atkvæðum.
i) Greiðslur til kjörstjórnar Flóahrepps
Sveitarstjórn samþykkir að laun formanns verði 3% af þingfararkaupi fyrir hvern fund. Laun annara fulltrúa verða 2% af þingfararkaupi. Kjörfundur vegna sveitarstjórnakosninga verður metinn sem sex fundir en kjörfundir vegna alþingiskosninga, þjóðaratkvæðagreiðslu, forsetakosninga ofl. verða metnir. Fulltrúar fá allan akstur vegna starfa sinna fyrir sveitarfélagið greiddan samkvæmt akstursdagbók, æskilegt er að þeir samnýti ferðir eins og kostur er.
Varamenn í kjörstjórn njóta sömu kjara og aðalmenn fyrir þá fundi sem þeir sitja.
Samþykkt með 5 atkvæðum.
Lögð fram tilboð í tölvur fyrir sveitarstjórn.
Sveitarstjórn samþykkir að taka tilboði frá TRS, eina IDP Flex 15″ i3 4010 8/500 og fjórar IDP Flex 14″ i5 4200 8/500, alls 620.874 kr. m/vsk.
Einnig samþykkt að taka tilboði TRS fyrir Office Professional Plus UTD fyrir opinbera aðila fyrir 5 tölvur.
Samþykkt með 5 atkvæðum.
Framkvæmdir eru hafnar samkvæmt tilboði JÁ verk við leikskólann í Þingborg.
Ófyrirséð var að skipta þarf um rotþró fyrir leikskólann og mun JÁ verk leggja fram kostnaðaráætlun vegna þess.
Samþykkt með 5 atkvæðum.
Sveitarstjórn samþykkir að halda áfram starfi vinnuhóps um leikskólamál á meðan á framkvæmdum stendur.
Árni Eiríksson oddviti mun sitja í nefndinni fyrir hönd sveitarstjórnar og Jóna Björg Jónsdóttir leikskólastjóri fyrir hönd leikskólans.
Kallað verður eftir tillögum um fulltrúa frá fræðslunefnd, foreldraráði Krakkaborgar og starfsmönnum leikskólans Krakkaborgar.
Jafnframt munu sveitarstjóri og umsjónarmaður fasteigna sitja fundi vinnuhóps.
Fundarboð til vinnuhóps berist einnig til sveitarstjórnar.
Samþykkt með 5 atkvæðum.
Sveitarstjórn samþykkir að semja við Brynjar Jón Stefánsson um akstur skólabíls sbr. auglýsingu í fréttablaðinu Áveitunni sem út kom í júní s.l.
Samþykkt með 5 atkvæðum.
Lagt fram til kynningar, erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga dags. 6. júní 2014 þar sem óskað er eftir kjörbréfi með nöfnum aðalfulltrúa og varafulltrúa. Kjörbréfið verður útfyllt samkvæmt lið 2 í fundargerð.
Samþykkt með 5 atkvæðum.
Lagt fram erindi frá Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti dags. 2. júní 2014 þar sem fram kemur að auknu fjármagni verði varið til uppbyggingar og verndaraðgerða á ferðamannastöðum sumarið 2014.
Sveitarstjórn fagnar styrknum.
Fundur skipulags- og byggingarnefndar dags. 24. júní n.k.
Fundur Héraðsnefndar dags. 25. júní n.k.
Fundur sveitarstjórnar Flóahrepps dags. 2. júlí n.k.
Aukaaðalfundur SASS dags. 2. júlí n.k.
a) Sveitarstjórnar Flóahrepps
Fundargerð sveitarstjórnar Flóahrepps dags. 4. júní 2014 lögð fram.
a) 157. fundur Heilbrigðisnefndar Suðurlands dags. 10. júní 2014
Fleira ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 23.15
Árni Eiríksson (sign)
Svanhvít Hermannsdóttir (sign)
Stefán Geirsson (sign)
Sigurbára Rúnarsdóttir (sign)
Elín Höskuldsdóttir (sign)
Margrét Sigurðardóttir, sveitarstjóri (sign)