Hátíðarhöld kvenfélaganna og ungmennafélaganna 17. júní sem áttu að fara fram í Einbúa
hafa verið færð inn í félagsheimilið Þingborg vegna veðurútlits.
Hátíðarhöldin hefjast kl 14:00 eins og áður var auglýst. Ef veður er skaplegt verður farið út í leiki svo það er um að gera að hafa með sér góð útiföt. Á hátíðinni verður boðið upp á andlitsmálningu, fjallkonan stígur á svið, farið verður í leiki og félögin bjóða upp á hátíðarkaffi. Við vonum svo sannarlega að sem flestir íbúar Flóahrepps og einnig brottfluttir sjái sér fært að mæta á þennan sögulega viðburð og fagna þjóðhátíðardeginum með sveitungum sínum.