Dagana 14.-20. maí n.k. mun Flóahreppur standa fyrir hreinsunarátaki í sveitarfélaginu.
Gámar fyrir járn og grófan úrgang verða staðsettir við Félagslund og Heiðargerði og hægt er að semja um að fá járnagám heim að bæ ef um er að ræða mikið magn af brotajárni. Íbúar eru beðnir um að láta vita á skrifstofu Flóahrepps í síma 480 4370 ef óskað er eftir gámi heim að bæ vegna brotajárns.
Minnt er á að gámasvæði sveitarfélagsins er í Hrísmýri við Selfoss þar sem hægt er að losna við spilliefni og fleira.