Eftirfarandi störf í Flóaskóla eru laus til umsóknar fyrir næsta skólaár:
Matreiðslumaður 100% starf
Íþróttakennsla 70% starf tímabundið til 18. febrúar
Námsráðgjafi 20% starf
Leitað er að samviskusömum og duglegum einstaklingum sem sýna frumkvæði, sveigjanleika og lipurð í samskiptum við börn og fullorðna. Umsækjendur verða að hafa hreint sakavottorð.
Umsóknarfrestur er til og með 25. apríl 2014.
Nánari upplýsingar um störfin gefur Guðmundur Freyr Sveinsson skólastjóri, sími 486-3460 / 859-3460. Umsókn ásamt ferilskrá skal senda á netfangið gudmundur@floaskoli.is.