Auglýst er eftir unglingum fæddum 1998, 1999 og 2000 með lögheimili í Flóahreppi, til vinnu í sumar við Vinnuskóla Flóahrepps.
Vinnuskólinn verður starfræktur frá 10. júní til 24. júlí og geta unglingar valið
um sex vikur innan þessa tímaramma.
Unnið verður 4 daga vikunnar, mánudaga til fimmtudaga frá kl. 9.00-16.00
Tekið er á móti skráningum á skrifstofu sveitarfélagins til mánudagsins 28. apríl n.k. í síma 480-4370 frá kl. 9.00-13.00 eða með tölvupósti á netfangið gudrun@floahreppur.is