Á fundi sveitarstjórnar Flóahrepps 8. janúar s.l. var samþykkt að gera kauptilboð í lóðirnar Þingborg 166286 og Þingborg eldri 166285 kr. 6.000.000. Lóðirnar eru úr landi Hraungerðis og tilheyra nú Kirkjumálasjóði.
Á fundi sveitarstjórnar 5. mars s.l. var lagt fram gagntilboð frá Kirkjumálasjóði að upphæð kr. 7.000.000 í ofangreindar lóðir sbr. fyrirliggjandi uppdrætti með fyrirvara um samþykki kirkjuráðs.
Sveitarstjórn hefur samþykkt fyrirliggjandi gagntilboð Kirkjumálasjóðs dags. 5. janúar 2006 í lóðirnar tvær. Önnur er 15,1 ha að stærð en það er lóðin sem m.a. leikskóli og félagsheimili standa á og hin lóðin er 12.247 m2 að stærð en það er lóðin sem gamla Þingborg stendur á.
Á fundi sveitarstjórnar 5. mars var einnig lagt fram erindi þar sem spurst var fyrir um húsnæði gömlu Þingborgar og hvort að til greina komi að húsið verði selt.
Sveitarstjórn hefur samþykkt að skoða núverandi nýtingu húsnæðisins og framtíðarnýtingu þess.