Skipulagsstofnun hefur auglýst fundi þar sem Lýsing Landsskipulagsstefnu 2015-2026 verður kynnt.
Fyrsti fundurinn verður í Reykjavík, í Iðnó, þriðjudaginn 25. febrúar næstkomandi klukkan 15:00-17:30. Stefnt er að því að senda út kynningarhluta fundarins á vef landsskipulagsstefnu. Lýsingin verður jafnframt kynnt á kynningar– og samráðsfundum á eftirtöldum stöðum:
Dagskrá funda:
Kynning á lýsingu
Umræður og fyrirspurnir
Hópavinna, umræður um áherslur
Samantekt hópavinnu
Fundirnir er opnir öllum, þeir sem vilja taka þátt eru beðnir að tilkynna það á netfangið landsskipulag@skipulagsstofnun.is.
Hægt er að nálgast lýsinguna á vef landsskipulagsstefnu www.landsskipulag.is.