Fundargerð 18. vinnufundar sveitarstjórnar Flóahrepps
Fundarstaður: Þingborg
Fundardagur: Miðvikudagur 22. janúar 2014
Fundartími: 20:00- 22:00
Fundarmenn: Aðalsteinn Sveinsson, oddviti, Árni Eiríksson, Elín Höskuldsdóttir, Hilda Pálmadóttir, Svanhvít Hermannsdóttir og Margrét Sigurðardóttir, sveitarstjóri
Samþykkt að fundargerð verði rituð á tölvu sbr. 23. gr. sveitarstjórnarlaga.
Dagskrá:
Rætt um sameiginlega stjórnun skólastiganna. Fyrir fundi liggja leiðbeiningar frá sambandi íslenskra sveitarfélaga um samrekstur skóla ásamt niðurstöðum könnunar sambandsins á framkvæmd samreksturs skóla. Einnig liggur fyrir fundi umsögn fræðslunefndar varðandi málið.
Sveitarstjórn samþykkir að fá Gerði Óskarsdóttur til að gera úttekt á hugmyndum um sameiginlega stjórnun með sveitarstjórn, fræðslunefnd og skólastjórnendum beggja skólastiganna.
Samþykkt með 5 atkvæðum.
Sveitarstjórn samþykkir að ráðinn verði sameiginlegur matráður fyrir Krakkaborg og Flóaskóla í 100% starf skólaárið 2014-2015.
Samþykkt með 5 atkvæðum.
Rætt um fundargerð fræðslunefndar dags. 16. janúar 2014.
Fleira ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 22:00
Aðalsteinn Sveinsson, oddviti (sign)
Árni Eiríksson, varaoddviti (sign)
Elín Höskuldsdóttir (sign)
Hilda Pálmadóttir (sign)
Svanhvít Hermannsdóttir (sign)
Margrét Sigurðardóttir (sign)