Iðunn Ýr Ásgeirsdóttir hefur tekið að sér verkefnastjórnun fyrir hönd óstofnaðs klasasamstarfs í Flóahreppi.
Samtök sunnlenskra sveitarfélaga veittu styrk til að fjármagna ráðningu verkefnastjóra sem mun vinna að því að koma á formlegu klasasamstarfi meðal ferðaþjónustuaðila og annarra í Flóahreppi. Markmið verkefnisins er að gera sveitarfélagið sýnilegra með því að efla tengsl á milli fólks og fyrirtækja, efla ferðaþjónustu í sveitarfélaginu, efla ímynd svæðisins auk þess að efla vitund um menningu og sögu Flóahrepps.
Iðunn er ferðamálafræðingur frá Háskóla Íslands og búsett í Forsæti í Flóahreppi. Iðunn mun vera með aðstöðu á skrifstofu Flóahrepps. Fyrir þá sem hafa spurningar eða áhugaverðar hugmyndir þá er öllum velkomið að kíkja í kaffi eða hafa samband í síma 480-4370 eða á idunnyrasgeirsdottir@gmail.com