Hestafjör 2013 verður haldið í reiðhöll Sleipnis að Brávöllum, Selfossi sunnudaginn 14. apríl nk. og hefst hátíðin kl. 14:00. Fram koma sýningarhópar barna, unglinga og ungmenna frá hestamannafélögum á Suðurlandi.
Skrautreið og ýmsar þrautir. Skemmtiatriði: Ingó og leynigestur, harmonikkuspil og veitingasala í hléi. Frítt inn meðan húsrúm leyfir. Kynnir: Steindór Guðmundsson.
Æskulýðsnefnd Sleipnis