Sveitarstjórn Flóahrepps hefur samþykkt reglur um úthlutn styrks/styrkja til menningarmála í Flóahreppi. Reglurnar gera ráð fyrir því að styrkir verði veittir til verkefna sem talin eru skipta máli fyrir mannlíf og félagslíf og/eða til þess fallin að stuðla að björgun menningarverðmæta í sveitarfélaginu. Til ráðstöfunar fyrir árið 2013 er kr. 1.000.000
Eftirfarandi vinnureglur voru settar til viðmiðunar fyrir úthlutun styrkja:
· Að um sé að ræða verkefni í Flóahreppi
· Að umsækjandi sé lögráða einstaklingur, félagasamtök, stofnun eða fyrirtæki sem er með lögheimili í Flóahreppi.
· Að umsókn fylgi lýsing á verkefni með verkáætlun, tímaramma, fjárhagsáætlun og upplýsingar um umsækjendur.
· Að umsækjandi ábyrgist að öll tilskilin leyfi séu til staðar fyrir framkvæmd verkefnis.
· Að umsókn fylgi ósk um styrkupphæð.
Ekki verða veittir ferðastyrkir eða styrkir til reksturs.
Umsóknum þarf að skila á skrifstofu Flóahrepps fyrir 15. apríl ár hvert og úthlutanir verða í tengslum við Fjör í Flóa.
Sveitarstjórn Flóahrepps tekur ákvörðun um úthlutun styrks/styrkja samkvæmt fyrirliggjandi umsóknum. Sveitarstjórn getur leitað álits þar til bærra aðila við mat á umsóknum.
Sveitarstjórn getur ákveðið að veita styrk til eins verkefnis eða fleiri.
Auglýst verður eftir umsóknum um styrki á næstunni.