Hrossaræktarfélögin þrjú í Flóahreppi ætla að bjóða upp á fyrirlestur mánudagskvöldið 11.febrúar nk. kl. 20.30 í Þingborg. Það er hinn kunni hestamaður og fyrrum kennari á Hvanneyri, Ingimar Sveinsson sem ætlar að fjalla um fóðrun og meðferð hrossa. Hann býr að ómældri þekkingu og reynslu á þessu sviði og eins hinu, að miðla til annarra.Ingimar hefur áratugum saman viðað að sér fróðleik um hesta og hestahald en hann gaf út bókina “Hrossafræði Ingimars“ eins og kunnugt er fyrir u.þ.b tveimur árum.
Þetta er einstakt tækifæri fyrir fólk til að ná sér í þekkingu og geta varpað fram fyrirspurnum til hans og vonumst við til að sjá sem flesta. Aðgangseyrir er aðeins 1000 kr. og kaffi verður selt á staðnum. Allir velkomnir.
Stjórnir Hrossaræktarfélaga Flóahrepps