Fundargerð 125. fundar sveitarstjórnar Flóahrepps
Fundarstaður: Þingborg
Fundardagur: Miðvikudagur 6. febrúar 2013
Fundartími: 20:00 – 23:30
Fundarmenn: Aðalsteinn Sveinsson, oddviti, Árni Eiríksson, Elín Höskuldsdóttir, Hilda Pálmadóttir, Svanhvít Hermannsdóttir og Margrét Sigurðardóttir, sveitarstjóri
Aðalsteinn Sveinsson setti fund og Margrét Sigurðardóttir ritaði fundargerð.
Samþykkt að fundargerð verði rituð á tölvu sbr. 23. gr. sveitarstjórnarlaga.
Á fundi liggur frammi ársskýrsla ungmennafélagsins Vöku fyrir árið 2012.
Dagskrá:
a) Fundargerð skipulags- og byggingarnefndar uppsveita Árnessýslu og Flóahrepps
Lögð fram 55. fundargerð skipulags- og byggingarnefndar dags. 24. janúar 2013.
Eftirfarandi dagskrárliðir varða Flóahrepp:
Mál nr. 3: Afgreiðslur byggingarfulltrúa
Lagðar fram til kynningar afgreiðslur byggingarfulltrúa frá 1. til 18. janúar 2013
Mál nr. 9: Heiðarbær, landnr. 166344
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við afgreiðslu nefndarinnar og samþykkir skv. 48. gr. skipulagslaga að 49,3 ha spilda úr jörðinni Heiðarbær verði stofnuð, með fyrirvara um samþykki aðliggjandi landeigenda. Ekki er gerð athugsemd við landsskipti skv. 13. gr. jarðalaga.
Mál nr. 10: Þjórsárnes – sameining lóða
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við afgreiðslu nefndarinnar og samþykkir skv. 48. gr. skipulagslaga að spildur með lnr. 220804 og 220810 verði sameinaðar Þjórsárnesi lnr. 204980. Eftir sameiningu verður Þjórsárnes 18,1 ha að stærð.
Mál nr. 31: Askbr. Bitra – þjónustusvæði við Skeiðavegamót
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við afgreiðslu nefndarinnar og samþykkir að fela skipulagsfulltrúa að kynna aðalskipulagsbreytinguna skv. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Mál nr. 32: Dsk Langholt 2 og 3
Sveitarstjórn samþykkir að fresta afgreiðslu.
Samþykkt með 5 atkvæðum.
b) Landamerki í Langholti 2 og 3
Sjá mál nr. 32 í lið a.
Sveitarstjórn samþykkir að leita eftir áframhaldandi samstarfi við Íslenska Gámafélagið um sorphirðu og endurvinnslu í Flóahreppi með áherslu á þriggja flokka kerfi. Oddvita og sveitarstjóra falið að fara í viðræður við fyrirtækið.
Samþykkt með 5 atkvæðum.
Lagður fram tölvupóstur dags. 3. febrúar 2013 ásamt kostnaðaráætlun um fyrirhugaða stækkun kirkjugarðsins í Gaulverjabæ , lögum um kirkjugarða dags. 26. apríl 1993 og viðmiðunarreglum Kirkjugarðaráðs og Sambands íslenskra sveitarfélaga um kirkjugarðsstæði og fleira.
Í erindi er óskað eftir aðkomu Flóahrepps að stækkun kirkjugarðsins sem nemur kr. 1.962.500 samkvæmt fyrirliggjandi kostnaðaráætlun.
Sveitarstjórn samþykkir að fara yfir kostnaðar-og verkáætlun með sóknarnefnd Gaulverjabæjarsóknar áður en ákvörðun er tekin um kostnaðarhlutdeild og verktíma.
Samþykkt með 5 atkvæðum.
Lagðar fram reglur um úthlutun styrks/styrkja, til menningarmála í Flóahreppi.Reglurnar gera ráð fyrir því að styrkir verði veittir til verkefna sem talin eru skipta máli fyrir mannlíf og félagslíf og/eða til þess fallin að stuðla að björgun menningarverðmæta í sveitarfélaginu.
Til ráðstöfunar samkvæmt ofangreindum reglum fyrir árið 2013 er kr. 1.000.000.
Samþykkt með 5 atkvæðum.
Lögð fram drög að samstarfssamningi um sameiginlegt tæknisvið uppsveita Árnessýslu og Flóahrepps ásamt minnisblaði dags. 28. janúar 2013.
Sveitarstjórn sér ekki hag í samstarfi um sameiginlegt tæknisvið að sinni.
Samþykkt með 5 atkvæðum.
Sveitarstjórn hefur samþykkt að taka tilboði Fossraf í lýsingu við sparkvöll, kr. 923.986.
Samþykkt með 5 atkvæðum.
Lögð fram erindi frá nefndasviði Alþingis, 458. mál og 323. mál.
Sveitarstjórn er jákvæð fyrir því að skoða niðurgreiðslu fargjalda í strætó fyrir nemendur með lögheimili í Flóahreppi frá og með næsta hausti.
Samþykkt með 5 atkvæðum.
Sveitarstjórn samþykkir að Gyða Guðmundsdóttir verði ráðin tímabundið í 20% starf við bókhald á skrifstofu Flóahrepps.
Samþykkt með 5 atkvæðum.
Sveitarstjórn samþykkir kaup á hljóðnemum fyrir félagsheimilin fyrir kr. 270.000 enda rúmist það innan fjárhagsáætlunar.
Samþykkt með 5 atkvæðum.
a) Sveitarstjórnar Flóahrepps
Fundargerð sveitarstjórnar Flóahrepps nr. 124 dags. 9. janúar 2013 lögð fram.
b) Fræðslunefndar Flóahrepps
Fundargerð fræðslunefndar Flóahrepps dags. 17. janúar 2013 lögð fram.
Liður 2 a). Formanni fræðslunefndar og leikskólastjóra falið að leita leiða til að láta kostnað vegna innleiðingar aðalnámskrár rúmast innan fjárhagsáætlunar.
Að öðru leyti er fundargerð lögð fram til kynningar.
Samþykkt með 5 atkvæðum.
c) Velferðarnefndar Árnesþings
Fundargerð velferðarnefndar Árnesþings dags. 12. desember 2012 lögð fram til kynningar ásamt starfsáætlun 2013.
a) Fundargerð Héraðsnefndar Árnesinga dags. 17. desember 2012
b) 145. fundur Skólaskrifstofu Suðurlands dags. 18. janúar 2013
c) 223. fundur Sorpstöðvar Suðurlands dags. 8.janúar 2013
d) Samkomulag um aðkomu Ásahrepps að Skipulags- og byggingarfulltrúaembætti uppsveita Árnessýslu og Flóahrepps bs.
e) Erindi frá UMFÍ 24. janúar 2013
a) Erindi frá úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála vegna Langholts
Lagt fram erindi frá úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála dags. 5. febrúar 2013 vegna kæru á samþykkt sveitarstjórnar Flóahrepps er varðar skipulag í landi Langholts. Óskað er eftir gögnum er málið varðar og er sveitarfélaginu gefinn kostur á að tjá sig um kæruna.
Skipulagsfulltrúa og sveitarstjóra falið að svara erindinu.
Samþykkt með 5 atkvæðum.
b) Fyrirspurn um dagforeldrastyrk
Lögð fram beiðni dags. 22. janúar 2013 um þátttöku í dagforeldragreiðslu þar sem ekki er laust pláss í leikskóla sveitarfélagsins að sinni.
Sveitarstjórn tekur jákvætt í málið og samþykkir að móta reglur um niðurgreiðslur fyrir dagforeldrastyrk.
Samþykkt með 5 atkvæðum.
c) Varamaður í æskulýðsnefnd- og tómstundanefnd
Sveitarstjórn samþykkir að Sigurður Ingi Sigurðsson taki sæti sem varamaður í æskulýðs-og tómstundanefnd Flóahrepps í stað Hauks Gíslasonar.
Samþykkt með 5 atkvæðum.
Fleira ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 23:30
Aðalsteinn Sveinsson, oddviti (sign)
Árni Eiríksson (sign)
Elín Höskuldsdóttir (sign)
Hilda Pálmadóttir (sign)
Svanhvít Hermannsdóttir (sign)
Margrét Sigurðardóttir (sign)