Fundargerð 121. fundar sveitarstjórnar Flóahrepps
Fundarstaður: Þingborg
Fundardagur: Miðvikudagur 31. október 2012
Fundartími: 20:00 – 21:30
Fundarmenn: Aðalsteinn Sveinsson, oddviti
Árni Eiríksson, varaoddviti
Elín Höskuldsdóttir
Hilda Pálmadóttir
Svanhvít Hermannsdóttir
Margrét Sigurðardóttir, sveitarstjóri
Aðalsteinn Sveinsson setti fund og Margrét Sigurðardóttir ritaði fundargerð.
Samþykkt að fundargerð verði rituð á tölvu sbr. 23. gr. sveitarstjórnarlaga.
Dagskrá:
Álagning fasteignagjalda fyrir árið 2013 verða samkvæmt eftirfarandi:
a-flokkur 0,50% af fasteignamati:
Íbúðir og íbúðarhús ásamt lóðarréttindum, erfðafestulönd í dreifbýli og jarðeignir, útihús og mannvirki á bújörðum sem tengd eru landbúnaði, öll hlunnindi og sumarbústaðir ásamt lóðarréttindum.
b-flokkur 1,32% af fasteignamati:
Sjúkrastofnanir samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu, skólar, heimavistir, leikskólar, íþróttahús og bókasöfn
c-flokkur 1,35% af fasteignamati:
Allar aðrar fasteignir, svo sem iðnaðar-, skrifstofu- og verslunarhúsnæði, fiskeldismannvirki, veiðihús og mannvirki sem nýtt eru fyrir ferðaþjónustu.
Vatnsgjald
Vatnsgjald verður 0,2% af fasteignamati eignar sem tengst geta vatnsveitum sveitarfélagsins.
Lágmarksálagning verður 6.000 kr. og hámarksálagning verður 18.000 kr. á íbúðar-og sumarhús.
Lóðarleiga er 1% af lóðamati.
Sorphirðu-og sorpeyðingargjald
Sorphirðugjald er sbr. samþykkt um sorphirðu og meðhöndlun úrgangs í Flóahreppi
a) 240 lítra tunna 12.000 kr.
c) 660 lítra kar 33.000 kr.
d) 1100 lítra kar 54.960 kr.
Sorpeyðingargjald:
Íbúðir 11.440 kr.
Sumarhús 11.440 kr.
Atvinnurekstur iðnaðarhverfi 24.960 kr.
Atvinnurekstur lögbýli 13.520 kr.
Seyrulosun 7.000 kr.
Öll gjöld hafa sömu gjalddaga og fasteignaskatturinn og er innheimtu þeirra hagað á sama hátt.
Greiðslur sem eru 20.000 kr eða lægri eru með einn gjalddaga, 1. mars. Greiðslur sem eru 20.001 kr til 60.000 kr greiðast á þremur gjalddögum, 1. mars, 1. maí og 1. júlí. Greiðslur 60.001 kr. og hærri greiðast á fimm gjalddögum, 1. mars, 1. maí, 1.júlí, 1. september og 1. nóvember.
Eindagi er 30 dögum eftir gjalddaga.
Samþykkt með 5 atkvæðum.
Lagt fram erindi frá reiðveganefnd Sleipnis dags. 10. október 2012 þar sem óskað er eftir fjárframlagi, 1.000.000 kr. frá Flóahreppi til reiðvegagerðar á árinu 2013.
Erindi samþykkt með 5 atkvæðum.
Lagður fram viðauki við fjárhagsáætlun 2012. Áætluð fjárfesting, 28.000.000 kr. fellur niður. Tekjujöfnunarframlag jöfnunarsjóðs sveitarfélaga lækkar um 10.553.000 kr.
Heildarbreyting vegna þessa viðauka á fjárhagsáætlun Flóahrepps árið 2012 er mætt með breytingu á handbæru fé.
Tekin til fyrri umræðu, fjárhagsáætlun Flóahrepps fyrir árið 2013 og fyrir árin 2014, 2015 og 2016 sbr. 62. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Fyrir fundi liggja drög að áætlun.
Vísað til seinni umræðu.
Samþykkt með 5 atkvæðum.
Fleira ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 21:30
Aðalsteinn Sveinsson, oddviti (sign)
Árni Eiríksson, varaoddviti (sign)
Elín Höskuldsdóttir (sign)
Hilda Pálmadóttir (sign)
Svanhvít Hermannsdóttir (sign)
Margrét Sigurðardóttir (sign)