Æskulýðsnefnd LH afhendir Æskulýðsbikar LH á hverju ári til þess félags er þykir skara fram úr í æskulýðsstarfi. Í ár var það hestamannafélagið Sleipnir sem hlaut þessa eftirsóttu viðurkenningu og eru þau vel að henni komin.
Það var Ágúst Hafsteinsson formaður æskulýðsnefndar Sleipnis ásamt Kjartani Ólafssyni formanni Sleipnis sem veitti bikarnum viðtöku úr hendi Helgu B. Helgadóttur, formanns æskulýðsnefndar LH.