Samþykkt hefur verið að ráða Guðmund Frey Sveinsson sem skólastjóra Flóaskóla.
Guðmundur hefur starfað sem aðstoðarskólastjóri í Vatnsendaskóla frá árinu 2007. Áður starfaði hann sem umsjónarkennari á unglingastigi í Snælandsskóla í Kópavogi frá 2003-2007.
Hann er stjórnmálafræðingur frá HÍ, með uppeldis- og kennsluréttindi frá KHÍ og MPA í opinberri stjórnsýslu.
Guðmundur er kvæntur Guðrúnu Birnu Kjartansdóttur og eiga þau þrjú börn. Þau hyggjast flytja í Skólatröð nú í sumar.