• 480 4370
  • floahreppur@floahreppur.is
logo-vefurlogo-stickylogo-vefurlogo-vefur
  • STJÓRNSÝSLA OG SKÓLAR
    • Aðalskipulag Flóahrepps 2016-2028
    • Gjaldskrár
    • Skólar
    • Stofnanir
    • Eyðublöð – samþykktir – reglur
    • Skipulagsmál
    • Fundargerðir
  • ÞJÓNUSTA
    • Stefna Flóarhepps – flettibókin
    • Flóaljós
    • Gagnleg símanúmer
    • Vatnsveita
    • Félagsheimili
    • Hundafangari
    • Sorpflokkun – spurt og svarað
  • FERÐAÞJÓNUSTA
    • Áhugaverðir staðir
    • Gistimöguleikar
    • Afþreying, veitingar og verslun
    • Kort af Flóahreppi
    • Menningarferð um Flóahrepp
    • Bæklingur – The animation of Flóahreppur
  • MANNLÍF OG MENNING
    • Atvinnulíf
    • Félagasamtök
    • Áveitan
    • Viðburðir
    • Fjör í Flóa 2019
    • Tónahátíð félagsheimilanna 2018
  • FERÐAÞJÓNUSTA
    • Áhugaverðir staðir
    • Gistimöguleikar
    • Afþreying, veitingar og verslun
    • Kort af Flóahreppi
    • Menningarferð um Flóahrepp
    • Bæklingur – The animation of Flóahreppur
  • MANNLÍF OG MENNING
    • Atvinnulíf
    • Félagasamtök
    • Áveitan
    • Viðburðir
    • Fjör í Flóa 2019
    • Tónahátíð félagsheimilanna 2018
  • Heim
  • Auglýsingar og tilkynningar
  • Fjör í Flóa 2012

Fjör í Flóa 2012

18. maí 2012
Flokkar
  • Auglýsingar og tilkynningar
Stikkorð

Fjör í Flóa 2012 . Fjölskyldu- og menningarhátíð í Flóahreppi 1. – 3. júní.

Dagskrá:

 

Föstudagur 1. júní

 

 

 

Kl. 10:00 – 12:00 Leikskólinn Krakkaborg  Opið hús, allir velkomnir að sjá börn í leik og starfi, einnig hægt að skoða listaverk eftir börnin.

 

 

 

Kl. 10:00 – 13:00 Skrifstofa Flóahrepps Opið hús, allir velkomnir, ljósmyndir af ýmsum atburðum í Flóahreppi til sýnis.

 

 

 

Kl. 10:00-14:00 Flóaskóli Sýning á verkum nemenda.

 

 

 

Kl. 14:00 Flóaskóli Skólaslit og útskrift 10. bekkinga. Ræður, viðurkenningar, tónlistaratriði, afhending vitnisburðar og útskriftarplagga.

 

 

 

KL.13:00-18:00 Búbót bændaverslun Gömlu-Þingborg  Opið.

 

Vörukynningar og smakk alla helgina.

 

 

 

Kl. 13:00 – 18:00 Tré og list í Forsæti III  Myndlistasýning Grétu Gísladóttur Glansmynd af sumri.

 

Tré og list fagnar 5 ára afmæli í sumar. Margir listamenn hafa haldið farandsýningar hjá okkur á þessum tíma og fengið verðskuldaða athygli. Stolt okkar eru verk Siggu á Grund, tréskurður á heimsmælikvarða, en þau eiga sinn fasta samastað í Tré og list. Aðgangur kr. 500 meðan hátíðin Fjör í Flóa stendur, frítt fyrir börn og unglinga.

 

 

 

Kl. 11:00 – 18:00 Sveitabúðin Sóley  í Tungu  Heitt á könnunni og svaladrykkur. Verið velkomin, gestgjafar:  Sóley Andrésdóttir og Björgvin Njáll Ingólfsson. 

 

 

 

Kl. 13:00 – 18:00 Ullarvinnslan í Þingborg  (Gamla Þingborg)  Opið hús.

 

 

 

Kl. 23:00 Þjórsárver – Ball með Stuðlabandinu Aðgangseyrir 2.000 kr. Aldurstakmark 18 ára.

 

 

 

Kl. 20:00 Flóðgáttin Hátíð við Flóðgátt vegna 85 ára afmælis Flóaáveitunnar og opnunar á vegslóða að Flóðgáttinni.  Að lokinni dagskrá við Flóðgátt verða kaffiveitingar í Þingborg í boði Áveitufélagsins.

 

 

 

Örnefnakort yfir jarðir í Hraungerðishreppi verða til sýnis í Þingborg frá föstudagskvöldi til sunnudags. Umsjónarmaður verkefnisins, Svavar Sigmundsson, verður til skrafs og ráðagerða.

 

 

 

Laugardagur 2. júní

 

Kl. 9:00 – 12:00 Félagslundur  Morgunmatur í boði Fjörs í Flóa og fyrirtækja á Suðurlandi.  Allir velkomnir í notalega samverustund og kjarngóðan morgunmat.  Kvenfélag Gaulverjabæjarhrepps sér um morgunmatinn. Kvenfélagið verður með kökubasar á staðnum og einnig verða þjóðbúningar til sýnis.  Andlitsmálun og leikir fyrir börn.   Sigrún Sigurðardóttir í Súluholti verður með myndlistarsýningu. Verkin verða til sölu.

 

Kl. 9:30 – Hlaupið að Félagslundi Hlaupið verður frá Sundhöllinni á Selfossi í Félagslund, 14 km.

 

 

 

Kl. 9:00 – 12:00 Gaulverjaskóli – Farfuglaheimili   Opið hús hjá þeim hjónum Oddnýju Guðmundsdóttur og Gesti Kristinsyni. Þau breyttu barnaskólanum í glæsilegt farfuglaheimili.

 

 

 

Kl. 11:30 Gaulverjabæjarkirkja Barna- og fjölskylduguðþjónusta hjá sr. Óskari Hafsteini Óskarssyni og Sveini Valgeirssyni.

 

 

 

Kl. 11:00 – 17:00 Hraungerðiskirkja  Kynning á nýlokinni endurgerð og viðgerðum á kirkjunni.

 

 

 

Kl. 11:00 – 18:00 Sveitabúðin Sóley  Í Tungu.  Heitt á könnunni og svaladrykkur.  Verið velkomin, gestgjafar:  Sóley Andrésdóttir og Björgvin Njáll Ingólfsson. 

 

 

 

Kl. 11:00 – 18:00 Ullarvinnslan í Þingborg  (Gamla Þingborg)

 

Langþráðarspunakeppni á halasnældu, allir velkomnir.

 

Kl. 12:00 – 15:00 Lambastaðir Opið hús þar sem gestum er boðið að skoða nýtt gistiheimili.

 

Kl. 12:00 – 18:00 Þingborg Ýmis dýr, stór og smá, til sýnis og ungar skríða úr eggjum.  Einnig verða handverk og listmunir til sýnis og sölu innandyra.  Gamlir bílar og verkfæri til sýnis á planinu. Kvenfélag Villingaholtshrepps verður með nytjamarkað.  Kvenfélag Hraungerðishrepps verður með hlutaveltu og blómasölu og sér einnig um kaffisölu á staðnum. 

 

KL.13:00-18:00 Búbót bændaverslun Gömlu-Þingborg  Opið. Boðið upp á að smakka grillað nautakjöt kl. 14:00-16:00.

 

Vörukynningar og smakk alla helgina.

 

Kl. 13:00 Torfærukeppni gamalla traktora í Súluholtsgryfjum Stefán Ólafsson tekur við skráningum og veitir nánari upplýsingar í síma 825-0679

 

Kl. 14:00  Þingborg –  Ingó Veðurguð mætir á staðinn og spilar nokkur lög. Einnig verða leikir að hætti umf. Baldurs og andlitsmálning verður á staðnum.

 

Kl.  15:30 Smalahundasýning í Þingborg – Smalahundafélag Árnessýslu sýnir listir sínar við smalamennsku.

 

Kl. 13:00 – 18:00 Tré og list í Forsæti III  Opið hús á verkstæði Ólafs. Þar verða þau Sigga á Grund og Ólafur við vinnu og spjall. Myndlistasýningin Grétu Gísladóttur, Glansmynd af sumri. Aðgangur kr. 500 meðan hátíðin Fjör í Flóa stendur, frítt fyrir börn og unglinga.

 

 

 

Kl. 20:30 Kvöldvaka í Félagslundi  Sveinn Waage verður með uppistand, Ingi Heiðmar Jónsson verður með kirkjukórinn, einsöngur Sigurður Torfi Guðmundsson.  Þjóðdansahópurinn Sporið mun sýna þjóðdansa og ungmennafélagið Vaka mun sýna stutt leikverk í léttum dúr.  Léttar veitingar til sölu.  Allir velkomnir, aðgangseyrir kr. 1000.

 

                                                                                               

 

Sunnudagur 3. júní

 

 

 

Kl. 10:00 Neistastaðahlaupið/gangan – Mæting í Þingborg.  Farið svokallaðan Neistastaðahring.  Hægt er að hlaupa/ganga mismunandi vegalengdir. Heitu pottanir í Þingborg opnir eftir hlaupið/gönguna.

 

 

 

Kl. 10:30 Örnefnaganga. Mæting á kirkjuhlaðinu í Hraungerði. Göngustjórar verða fræðaþulirnir Guðmundur Stefánsson og Svavar Sigmundsson. Gengið verður frá Gamla Hraungerði að Nýja Hraungerði. Göngutími ca. 2 klst.

 

 

 

Kl. 11:00 – 13:00 Ferðamannafjárhús Egilstaðakoti  Opið hús.  Gestum gefst tækifæri til að skoða aðstöðuna og kynna sér starfsemina.   Kjötsúpa til sölu

 

 

 

Kl. 11:00 – 14:00 Nýtt véla og sprautuverkstæði í hlöðunni í Kolsholti verður til sýnis. Kaffi á könnunni.

 

 

 

Kl. 11:00 – 18:00 Sveitabúðin Sóley  Í Tungu  Heitt á könnunni og svaladrykkur.  Verið velkomin, gestgjafar:  Sóley Andrésdóttir og Björgvin Njáll Ingólfsson. 

 

 

 

Kl. 12:00 – 15:00 Ferðaþjónustan Vatnsholti Opið hús hjá Jóhanni Helga og Margréti. Súpa og brauð í boði.

 

Kl. 12:00 – 17:00 Þingborg Ýmis dýr, stór og smá, til sýnis og ungar skríða úr eggjum.  Einnig verða handverk og listmunir til sýnis og sölu innandyra.  Gamlir bílar og verkfæri til sýnis á planinu. Kvenfélag Villingaholtshrepps verður með nytjamarkað.  Kvenfélag Hraungerðishrepps verður með hlutaveltu og blómasölu og sér einnig um kaffisölu á staðnum. 

 

KL.13:00-18:00 Búbót bændaverslun Gömlu-Þingborg  Opið.

 

Vörukynningar og smakk alla helgina.

 

 

 

Kl. 13:00 – 18:00 Ullarvinnslan í Þingborg  (Gamla Þingborg)  Opið hús.

 

 

 

Kl. 13:00 – 17:00 Ölvisholt Opið hús fyrir gesti og gangandi.  Þar má skoða lausagönguhesthús / opið hesthús ásamt sjálfvirku fóðurkerfi fyrir hey og kjarnfóður sem henta jafnt fyrir reiðhesta í lausagöngu og í stíum en ennfremur fyrir útigang.  Hesthúsið er búið að vera í notkun í þrjú ár.  Einnig má hafa samband í síma 856-1132 og koma á öðrum tímum ef það hentar betur.

 

 

 

Kl. 13:00 – 18:00 Tré og list í Forsæti III  Opið hús á verkstæði Ólafs. Þar verða þau Sigga á Grund og Ólafur við vinnu og spjall. Myndlistasýningin Grétu Gísladóttur Glansmynd af sumri. Aðgangur kr. 500 meðan hátíðin Fjör í Flóa stendur, frítt fyrir börn og unglinga.

 

 

 

Kl. 13:30 Hraungerðiskirkja   Fyrsta messa eftir endurbætur á kirkjunni. Prestur séra  Kristinn Ágúst Friðfinnsson.

 

 

 

Kl. 14:00 – 17:00 Þjórsárver  Barnaskemmtun.  Pollapönk mætir á svæðið kl. 14:00. Kvenfélag Villingaholtshrepps verður með kaffihlaðborð.

 

 

 

Gestir hátíðarinnar eru hvattir til að nýta sér þær gönguleiðir sem í sveitarfélaginu eru um helgina.  Uppdrætti með merktum gönguleiðum má nálgast í félagsheimilum Flóahrepps alla helgina. 

 

Nánar á www.floahreppur.is

 

Deila
Skrifstofa Flóahrepps er opin frá kl. 09:00 - 16:00 mánudaga - fimmtudaga og 09:00 - 13:00 á föstudögum.
Síminn 480 4370 er opinn frá kl. 09:00 - 13:00 alla virka daga.

    Nafn (nauðsynlegt)

    Netfang (nauðsynlegt)

    Efni

    Skilaboð