Fundargerð 113. fundar sveitarstjórnar Flóahrepps
Fundarstaður: Þingborg
Fundardagur: Miðvikudagur 21. mars 2012
Fundartími: 20:30 – 22:00
Fundarmenn: Aðalsteinn Sveinsson, oddviti, Árni Eiríksson, Elín Höskuldsdóttir, Hilda Pálmadóttir, Svanhvít Hermannsdóttir og Margrét Sigurðardóttir, sveitarstjóri
Aðalsteinn Sveinsson setti fund og Margrét Sigurðardóttir ritaði fundargerð.
Samþykkt að fundargerð verði rituð á tölvu sbr. 23. gr. sveitarstjórnarlaga.
Dagskrá:
Sveitarstjórn Flóahrepps ákvað á fundi 7. desember 2011 að auglýsa jörðina Yrpuholt til sölu.
Jörðin var auglýst í Morgunblaðinu 11. febrúar 2012 og í Bændablaðinu 16. febrúar 2012.
Óskað var eftir skriflegum tilboðum fyrir 10. mars 2012.
Fyrir fundi liggja þrjú tilboð sem bárust fyrir tilsettan tíma. Tilboð komu frá Heimi Ólafssyni, kr. 5.000.000, frá Guðjóni Sigurðssyni kr. 15.000.000 og frá Nes Capital ehf. kr. 36.000.000.
Sveitarstjórn samþykkir að taka hæsta tilboði, tilboði Nes Capital ehf. kr. 36.000.000 staðgreitt.
Sveitarstjórn samþykkir einnig að fela Óskari Sigurðssyni lögfræðingi að svara athugasemdum sem fram koma í tölvupósti Jónasar Arnar Jónassonar hdl fyrir hönd Guðjóns Sigurðssonar.
Samþykkt með 5 atkvæðum.
Lögð fram skýrsla um húsnæðismál grunn- og leikskóla í Flóahreppi. Í skýrslunni er áætlun um nemendafjölda leik- og grunnskóla næstu ára og reiknuð út húsnæðisþörf fyrir þann fjölda miðað við reglugerðir þar að lútandi.
Einnig liggja fyrir sex tillögur að hugsanlegu fyrirkomulagi á Villingaholti.
Sveitarstjórn samþykkir að óska eftir kostnaðaráætlun fyrir tillögur a, b, c og f.
Samþykkt með 5 atkvæðum.
Tekin fyrir beiðni frá Sýslumanninum á Selfossi dags. 2. mars 2012 þar sem óskað er eftir umsögn vegna leyfis til reksturs gististaðar á Lambastöðum.
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemdir sbr. reglugerð nr. 585/2007.
Samþykkt með 4 atkvæðum.
Svanhvít Hermannsdóttir vék af fundi við afgreiðslu málsins.
a) Sveitarstjórnar Flóahrepps
Fundargerð sveitarstjórnar Flóahrepps dags. 7. mars 2012 lögð fram.
b) Fræðslunefndar
Fundargerð fræðslunefndar dags. 15. mars 2012 lögð fram. Varðandi lið 1 þá samþykkir sveitarstjórn tillögu fræðslunefndar um 40% stöðugildi.
Samþykkt með 5 atkvæðum.
Fleira ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 22:00