• 480 4370
  • floahreppur@floahreppur.is
logo-vefurlogo-stickylogo-vefurlogo-vefur
  • STJÓRNSÝSLA OG SKÓLAR
    • Aðalskipulag Flóahrepps 2016-2028
    • Gjaldskrár
    • Skólar
    • Stofnanir
    • Eyðublöð – samþykktir – reglur
    • Skipulagsmál
    • Fundargerðir
  • ÞJÓNUSTA
    • Stefna Flóarhepps – flettibókin
    • Flóaljós
    • Gagnleg símanúmer
    • Vatnsveita
    • Félagsheimili
    • Hundafangari
    • Sorpflokkun – spurt og svarað
  • FERÐAÞJÓNUSTA
    • Áhugaverðir staðir
    • Gistimöguleikar
    • Afþreying, veitingar og verslun
    • Kort af Flóahreppi
    • Menningarferð um Flóahrepp
    • Bæklingur – The animation of Flóahreppur
  • MANNLÍF OG MENNING
    • Atvinnulíf
    • Félagasamtök
    • Áveitan
    • Viðburðir
    • Fjör í Flóa 2019
    • Tónahátíð félagsheimilanna 2018
  • FERÐAÞJÓNUSTA
    • Áhugaverðir staðir
    • Gistimöguleikar
    • Afþreying, veitingar og verslun
    • Kort af Flóahreppi
    • Menningarferð um Flóahrepp
    • Bæklingur – The animation of Flóahreppur
  • MANNLÍF OG MENNING
    • Atvinnulíf
    • Félagasamtök
    • Áveitan
    • Viðburðir
    • Fjör í Flóa 2019
    • Tónahátíð félagsheimilanna 2018
  • Heim
  • Fréttir
  • Sameiginleg félagsþjónusta

Sameiginleg félagsþjónusta

3. maí 2011
Flokkar
  • Fréttir
Stikkorð

Samstarfssamningur um sameiginlega félagsþjónustu í Hveragerði, Ölfusi, Grímsnes- og Grafningshreppi, Bláskógabyggð, Hrunamannahreppi, Skeiða- og Gnúpverjahreppi og Flóahreppi var undirritaður af fulltrúum sveitarfélaganna á Flúðum í gær, 2 maí.

Samstarfssamningur um sameiginlega félagsþjónustu í Hveragerði, Ölfusi, Grímsnes- og Grafningshreppi, Bláskógabyggð, Hrunamannahreppi, Skeiða- og Gnúpverjahreppi og Flóahreppi var undirritaður af fulltrúum sveitarfélaganna á Flúðum í gær, 2 maí.

Við sama tilefni var undirritað erindisbréf fyrir sameiginlega velferðarnefnd þessara sveitarfélaga. Með þessari undirritun er sameiginleg yfirstjórn velferðarmála þessara sveitarfélaga staðreynd.


Tilgangur samstarfsins er að efla samstarf milli sveitarfélaganna á svæðinu á sviði félagsþjónustu með það að markmiði að minnka faglega einangrun starfsmanna auk þess sem skapað verður teymi starfsmanna sem samstíga vinnur að því að efla og bæta þjónustu við íbúa í þessum sveitarfélögum.


Nýtt fyrirkomulag tekur gildi þann 1. ágúst næstkomandi. Þá mun sameiginleg velferðarnefnd og sameiginlegur félagsmálastjóri taka til starfa en starfssvæðin verða áfram þrjú, Ölfus, Hveragerði, Uppsveitir Árnessýslu og Flóahrepps (Uppsveitir og Flói). Á hverju svæði verða félagsráðgjafar að störfum en nýr félagsmálastjóri mun hafa yfirumsjón með starfinu á svæðunum.


Núverandi félagsmálastjórum hefur verið sagt upp störfum og ítrekuðu fulltrúar sveitarfélaganna þakkir sínar til þeirra þriggja fyrir vel unnin störf.


Sameiginleg velferðarnefnd þessara sveitarfélaga mun verða skipuð fljótlega, auk þess sem ný staða félagsmálastjóra í sameiginlegri félagsþjónustu verður auglýst laus til umsóknar á næstu dögum.

Deila
Skrifstofa Flóahrepps er opin frá kl. 09:00 - 16:00 mánudaga - fimmtudaga og 09:00 - 13:00 á föstudögum.
Síminn 480 4370 er opinn frá kl. 09:00 - 13:00 alla virka daga.

    Nafn (nauðsynlegt)

    Netfang (nauðsynlegt)

    Efni

    Skilaboð