Starfsíþróttanefnd HSK stendur fyrir héraðsmóti í stafsetningu sunnudaginn 29. maí. Fer mótið fram í Flóaskóla og hefst kl. 13:30.
Starfsíþróttanefnd HSK stendur fyrir héraðsmóti í stafsetningu sunnudaginn 29. maí. Fer mótið fram í Flóaskóla og hefst kl. 13:30.
Keppnin er haldin í tengslum við sveitahátíðina Fjör í Flóa sem haldin er í Flóahreppi dagana 27.-29. maí. Keppnin fer þannig fram að keppendur skrifa eftir upplestri alls 50 orð sem fylla þarf í eyður á texta. Engin hjálpartæki eru leyfð fyrir utan gleraugu. Skriffæri verða á staðnum. Mótið er öllum opið og skráning er á staðnum. Þeir sem ekki keppa fyrir eitthvert aðildarfélag innan HSK geta keppt sem gestir. Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin en 6 fyrstu keppendur fá stig fyrir sitt félag í heildarstigakeppni ársins. Margt fleira verður á dagskrá hátíðarinnar þennan sama dag. Flóaskóli er til sýnis en þar var tekin í notkun glæsileg viðbygging í haust. Þá er handverkssýning og flóamarkaður í Þjórsárveri auk þess sem Björgunarfélag Árborgar býður upp á kassaklifur og töframaður verður á svæðinu. Það er því tilvalið fyrir alla fjölskylduna að fara í sunnudagsbíltúr um Flóann þennan dag með viðkomu á stafsetningarmóti HSK í Flóaskóla.