Ungfolasýning hrossaræktarfélaganna í Flóahreppi fór fram í reiðhöllinni í Syðri-Gegnishólum sl. fimmtudagskvöld. 14 tveggja og þriggja vetra folar tóku þátt.
Ungfolasýning hrossaræktarfélaganna í Flóahreppi fór fram í reiðhöllinni í Syðri-Gegnishólum sl. fimmtudagskvöld. 14 tveggja og þriggja vetra folar tóku þátt. Ríflega 100 manns komu til að fylgjast með sýningunni sem Gunnar og Kristbjörg hrossaræktendur í Auðsholtshjáleigu dæmdu af kostgæfni.
Margir glæsilegir folar sýndu flott tilþrif og þar á meðal var sýndur fallegur foli, Dofri frá Einhamri við Akranes undan Krák frá Blesastöðum og Freyju frá Litla-Kambi, en hann tók ekki þátt í sjálfri keppninni.
Stjórnir hrossaræktarfélaganna vilja koma á framfæri þökkum til Bergs og Olil í S-Gegnishólum fyrir afnotin af reiðhöllinni þeirra. Einnig kærar þakkir til Gunnars og Kristbjargar fyrir dómstörfin en þau gáfu andvirði vinnu sinnar til æskulýðsstarfs félaganna. Úrslit urðu þessi:
1. Gáll frá Dalbæ brúnn
F. Adam frá Ásmundarstöðum
M. Storka frá Dalbæ
Eig/rækt: Már Ólafsson og Sigríður Harðardóttir
2. Þröstur frá Efri-Gegnishólum rauðskjóttur F. Natan frá Ketilsstöðum M. Hrönn frá Efri-Gegnishólum
Eig/rækt: Bragi Birgisson
3. Gustur frá Langsstöðum grár
F. Kjarni frá Þjóðólfshaga
M. Von frá Langsstöðum
Rækt: Trausti Hjálmarsson
Eig: Trausti Hjálmarsson/Ketill Ágústsson