Gríptu gæsina…
Fékkstu frábæra hugmynd í sturtu í gær? Hefuru gengið með sömu hugmyndina í maganum í tvö ár? Eða skortir þig kunnáttu til að koma góðri hugmynd í framkvæmd?
Nú er Frumkvöðlakeppni Innovit, Gulleggið 2011, í þann mund að hefjast þar sem markmiðið er að hjálpa hugmyndum að verða að veruleika. Allir þeir sem luma á viðskiptahugmynd eru því hvattir til þess að senda hana inn í keppnina og fá í kjölfarið aðstoð við að breyta hugmyndunum í fullbúnar viðskiptaáætlanir.
Allir sem hafa viðskiptahugmynd geta farið inn á http://www.gulleggid.is/ og sent inn sína hugmynd fyrir 20. janúar 2011. Fullur trúnaður ríkir vegna þeirra hugmynda sem sendar eru inn í keppnina.
….meðan hún gefst.