Nemendur í 8. bekk fóru í vikunni í heimsókn til hjónanna Ólafs Sigurjónssonar og Bergþóru Guðbergsdóttur í listasmiðjunni Tré og list í Flóahreppi.
Nemendur í 8. bekk fóru í vikunni í heimsókn til hjónanna Ólafs Sigurjónssonar og Bergþóru Guðbergsdóttur í listasmiðjunni Tré og list í Flóahreppi. Þau fræddu nemendur um safnið og Ólafur sýndi þeim verkstæði sitt og muni sem hann er að gera upp. Við tilefnið færði hann skólanum innrammaða ljósmynd að gjöf, en myndin er af gosinu í Eyjafjallajökli sl. vor. Ártal myndarinnar og vígsluár nýbyggingar við Flóaskóla er hið sama eða 2010 og verður myndin hengd á vegg í nýja skólanum svo sem flestir geti notið hennar. Flóaskóli sendir Ólafi innilegar þakkir fyrir þessa fallegu gjöf og þeim hjónum fyrir góðar móttökur á nemendahópum, bæði nú og í fyrra.