Í dag var dregið í happdrætti sem starfsfólk Flóaskóla stóð fyrir. Happdrættið er hluti af fjáröflun vegna námsferðar til Boston í mars 2011. Hér að neðan eru þau 20 númer sem dregin voru.
Númer Vinningur
140 Sjónvarpskúruteppi; bútasaumur eftir Margréti Sigurgeirsdóttur.
89 Málverk eftir listakonuna Þóru Grönfeldt.
45 Prjónuð og þæfð taska með óvæntum glaðningi eftir Öldu Stefánsdóttur.
117 5 kg beinlaus fiskflök.
9 2x 20 kg kartöflur, ræktaðar á bökkum Þjórsár.
85 Gjafabréf fyrir 3 mánaða áskrift að sjónavarpsstöðinni Skjár einn.
122 Einn dagur veiðileyfi í Hvítá þann 13. ágúst 2011 í landi Langholts I .
96 Einnar nætur gisting í Skálholti fyrir tvo.
73 10 kg af nautahakki; beint frá bónda.
61 Tveir hálsklútar; íslensk hönnun.
98 Tveir púðar í sófann; íslensk hönnun.
18 Tvær nýjar bækur úr jólabókaflóðinu frá Krónunni.
44 „Worx“ hleðsluborvél í tösku frá Húsasmiðjunni.
30 „Scott“ útvarp frá Árvirkjanum.
80 Verkfærasett að verðmæti kr. 23.000 frá Rönning.
134 Nokia 2690 farsími að verðmæti kr. 17.900 frá TRS.
174 Gjafakort að verðmæti kr. 5.000 í Bónus.
112 Gjafabréf að verðmæti kr. 6.000 á veitingastaðinn Menam á Selfossi.
19 Gjafabréf að verðmæti kr. 5.000 í IKEA.
151 Gjafabréf að verðmæti kr. 5.000 í IKEA.
Haft verður samband við alla vinningshafa símleiðis.
Með kærri þökk fyrir stuðninginn og gleðileg jól.