• 480 4370
  • floahreppur@floahreppur.is
logo-vefurlogo-stickylogo-vefurlogo-vefur
  • STJÓRNSÝSLA OG SKÓLAR
    • Aðalskipulag Flóahrepps 2016-2028
    • Gjaldskrár
    • Skólar
    • Stofnanir
    • Eyðublöð – samþykktir – reglur
    • Skipulagsmál
    • Fundargerðir
  • ÞJÓNUSTA
    • Stefna Flóarhepps – flettibókin
    • Flóaljós
    • Gagnleg símanúmer
    • Vatnsveita
    • Félagsheimili
    • Hundafangari
    • Sorpflokkun – spurt og svarað
  • FERÐAÞJÓNUSTA
    • Áhugaverðir staðir
    • Gistimöguleikar
    • Afþreying, veitingar og verslun
    • Kort af Flóahreppi
    • Menningarferð um Flóahrepp
    • Bæklingur – The animation of Flóahreppur
  • MANNLÍF OG MENNING
    • Atvinnulíf
    • Félagasamtök
    • Áveitan
    • Viðburðir
    • Fjör í Flóa 2019
    • Tónahátíð félagsheimilanna 2018
  • FERÐAÞJÓNUSTA
    • Áhugaverðir staðir
    • Gistimöguleikar
    • Afþreying, veitingar og verslun
    • Kort af Flóahreppi
    • Menningarferð um Flóahrepp
    • Bæklingur – The animation of Flóahreppur
  • MANNLÍF OG MENNING
    • Atvinnulíf
    • Félagasamtök
    • Áveitan
    • Viðburðir
    • Fjör í Flóa 2019
    • Tónahátíð félagsheimilanna 2018
  • Heim
  • Fréttir
  • Heimildamynd um Húsið

Heimildamynd um Húsið

30. desember 2010
Flokkar
  • Fréttir
Stikkorð

Leikin heimildarmynd um Húsið á Eyrarbakka verður sýnd í Ríkissjónvarpinu 2. janúar 2011 kl. 15:25.

Leikin heimildarmynd um Húsið á Eyrarbakka verður sýnd í Ríkissjónvarpinu 2. janúar 2011 kl. 15:25.

Sunnlenskir leikarar ljá myndinni krafta sína en fram koma Sigurgeir Hilmar Friðþjófsson, Maríanna Clara Lúthersdóttir, Erla Kristín Guðmundsdóttir, Dagur Fannar Magnússon, Elín Gunnlaugsdóttir og Gunnar Páll Júlíusson. Tónlistin sem samin var sérstaklega fyrir myndina er eftir sunnlenska tónskáldið Elínu Gunnlaugsdóttur. Andrés Indriðason samdi handrit og leikstýrði myndinni, kvikmyndataka var í höndum Jóhannesar Jónssonar. Tökur fóru fram í maí 2007 og forsýnd aðstandendum í nóvember sama ár.Myndin hefur verið sýnd við ýmis tækifæri síðan en verður nú sýnd í útbreiddasta fjölmiðli landsins. Fyrirhuguð er DVD-útgáfa.


Kaupmannasamtök Íslands er aðal styrktaraðili heimildarmyndarinnar. Einnig bárust veglegir styrkir frá Þjóðhátíðarsjóði, Menningarráði Suðurlands og Barnamenningarsjóði Sveitarfélagsins Árborgar. Sömuleiðis veittu Set ehf, Ræktunarsamband Flóa og Skeiða ehf,Máni ÁR 70 ehf og Auðhumla svf safninu liðsinni til gerðar myndarinnar í formi styrkja.


Húsið var reist 1765 og var fram á 20. öld íbúðarhús kaupmanna Eyrarbakkaverslunar – eða faktora eins og þeir voru nefndir. Húsið var höfðingja- og menningarsetur og báru ýmsir íbúar þess með sér strauma heimsmenningar í tónlist og myndlist sem höfðu djúpstæð áhrif á margan heimamanninn. Einn helsti vettvangur listiðkunar og sköpunar var einmitt í stofunni í Húsinu. Miðstöð verslunar og viðskipta á Suðurlandi var í langan tíma á Eyrarbakka með kaupsvæði frá Selvogi að Lómagnúpi. Auk verslunarstarfanna létu faktorarnir margvísleg málefni til sín taka sem horfðu til heilla og framfara fyrir íbúana. Í heimildarmyndinni er áhersla lögð á þennan blómatíma Eyrarbakkaverslunar en einnig er Húsinu fylgt til okkar daga.


Sjá einnig http://dagskra.ruv.is/nanar/11412/

Frétt frá Lýði Pálssyni, safnstjóra Byggðasafns Árnessýslu.

Deila
Skrifstofa Flóahrepps er opin frá kl. 09:00 - 16:00 mánudaga - fimmtudaga og 09:00 - 13:00 á föstudögum.
Síminn 480 4370 er opinn frá kl. 09:00 - 13:00 alla virka daga.

    Nafn (nauðsynlegt)

    Netfang (nauðsynlegt)

    Efni

    Skilaboð