Málþing verður haldið á Hótel Selfoss 26. nóvember næstkomandi frá kl. 13.00 – 17.00. Stjórnandi málþingsins er Steini Þorvaldsson formaður Stjórnarnefndar málefna fatlaðra.
Málþing verður haldið á Hótel Selfoss 26. nóvember næstkomandi frá kl. 13.00 – 17.00. Stjórnandi málþingsins er Steini Þorvaldsson formaður Stjórnarnefndar málefna fatlaðra.
DAGSKRÁ:
Kl. 13.00 – 13.05. Setning Björgvin Sigurðsson alþingismaður setur þingið.
Kl. 13.05 – 13.20. Gildin í samfélaginu – hvernig byggjum við brýr á milli mismunandi viðhorfa.
Gunnar Hersveinn, rithöfundur og heimspekingur.
13.20 – 13.45. Stjórnsýsla á tímamótum – hvað geta ríki og sveitarfélög lært hvort af öðru í aðdraganda yfirfærslunnar.
Halldór S. Guðmundsson lektor við félagsráðgjafadeild Háskóla Íslands.
13.45 – 14.10. Hvaða væntingar hafa aðstandendur til yfirfærslunnar.
Kristín Björk Jóhannsdóttir, foreldri og Aðalbjörg Skúladóttir, foreldri.
14.10 – 14.25. Hvernig er staða undirbúnings sveitarfélaga á svæðinu í aðdraganda yfirfærslunnar?
Fulltrúar þjónustusvæðanna kynna aðgerðaráætlanir sínar um framkvæmd þjónustunnar. Guðlaug Jóna Hilmarsdóttir verkefnisstjóri félagslegra úrræða í Árborg.
14.25 – 14.45. Kaffihlé.
14.45 – 15.30. Að hugsa í lausnum.
Notendastýrð persónuleg aðstoð(NPA). Guðjón Sigurðsson formaður MND félagsins kynnir reynslu sína.
Atvinna með stuðningi (Ams) Kristján J. Gíslason starfsmaður í Bónus gerir grein fyrir reynslu sinni. Notandi spyr notanda (NsN). Elín Ebba Ásmundsdóttir dósent við Háskólann á Akureyri.
15.30 – 16.00. Góðar fyrirmyndir í starfi svæðisskrifstofa/ mikilvægi ráðgjafarþjónustu
Arna Ír Gunnarsdóttir, sviðsstjóri/félagsráðgjafi Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra Suðurlandi fjallar um mikilvægi ráðgjafarþjónustu við fatlaða og aðstandendur.
16.00 – 16.20. Hvað gerist um áramót? Kynning á samkomulagi og nýju lagafrumvarpi um málefni fatlaðra.
Einar Njálsson formaður verkefnisstjórnar kynnir helstu breytingar á skipan þjónustu við fatlað fólk um næstu áramót.
16.20 – 17.00 Umræður og fyrirspurnir.
Fulltrúar þjónustusvæða á Suðurlandi, framkvæmdastjóri Svæðisskrifstofu Suðurlands og formaður verkefnisstjórnar vegna yfirfærslu málefna fatlaðra sitja fyrir svörum.
Málþingið er hluti málþingsraðar sem Stjórnarnefnd málefna fatlaðra, Félags- og tryggingamálaráðuneytið, Svæðisskrifstofa Suðurlands og Svæðisráðs Suðurlands standa fyrir.
Málþingið er öllum opið.